Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1942, Page 24

Heimilisblaðið - 01.01.1942, Page 24
21 ‘HEIMILISBLAÐIÐ Stórir bylgjuhryggir risu á liafinu með froðulöð- ur í toppi. Helen hugsaði að nú hlytu Salvatore og Crome að vera búnir að borð,a, fyrst Abel var kom- inn upp. Nú gat hún vogað sér niður. Walter Crome nálgaðist hana. Hann gekk á skóm, ineð gúmmísólum, og var kominn fast að henni. án þess að hún tæki cftir honum. Hann tók vindlings- stúf úr munnvikinu og kastaði honum í hafið. Augu hans voru þokukennd, eins og allt af, og vínþefinn lagði af honum. »Gott, að ég liitli yður«, sagði hann loðmæltur. »Ég ætla að tala um dálítið \ ið yður. Pér cruð í ætt við Carson konung. Það er tvennt, sem ég' vil spyrja uxn. Við byrjum á því fyrra. Við nefndum Carson konung. Hvar er hann?« »Ég veit það ekki«, sagði Heien stutt í spuna, og brökk burt frá Crome. Hann hafði teygt höndina til hennar. Hana hryllti við fingrum hans, sem mesi líktusl klóm. »Á Fenai er hann ekki«. Walter Crome hristi höf- uðið glottandi. »Ég veit.að hann er þar ekki. Þér farið til Fenai, þá hlýtur hann að vera á eyju þar í nánd. Ég er skrítinn, er ekki svo? Hann glotti aftur. Ég vil nefnilega hafa hendur í hári Carsons. Og ég veit, að ef ég fylgi yður finn ég' hann. Er það ekki satt?« Hann greip um báða úlnliði Helenar og hélt henni fast. Hann lét hendurnar renna upp eftir nöktum örmum hennar, upp að öxlum, greip um þær og' þrýsti henni að sér. »Yndislega Helen«, þvog'laði hann. Helen streytlist við að losna. Crome vildi ekki sleppa henni. Hann var ekki sterkur, en hann hélt henni með'öllum þeim þráa, sem fullum manni er eiginlegur. Þá sló Helen í andlit hans. Hann sleppti takinu undir eins. Og hún sló hann aftur. Hún vissi ekki sitt rjúkandi ráð, hún var gripin af óviðjafnanlegri þrá til að losna. Hún vildi ekki láta þennan þorpara kúga sig. Hún áttaði sig fyrst, þegar hún heyrði skellinn. Crome hafði inisst jafnvægið og steypzt útbyrðis. Hún sá náfölt andlit hans í dökku vatninu, seni glitraði með maurildisrákum. Henni fannst að hún gæti séð óttann í augum hans, þar sem hann synti fálmandi og reyndi að hrópa. Það varð þó ekkri hann, heldur Helen, sem æpti. Hún hljóðaði hátt af skelf- ingu — en svo fann hún að einhver greip utan um hana. Sterkir armar héldu henni fast, og hönd vai stutt á munn hennar. »Það er of seint, Ilelen. Hann er sokkinn. Nú er það verst i'yrir yður sjálfa, ef þér æpið á hjálp«, sagði rödd Salvatores. Hann sleppti henni strax. »Stendur ekki heima« segja lesendurnir, en það stendur nú heima samt! »Viðskiptamaðurinn hefir allt af rétt fyrir sér«, er góð og göm- ul kaupsýsluregla. En samt er nú uppi sá maður, sem hefir reynst tilvinnandi að sanna, að »viðskiptamaðurinn« hafi ekki allt af rétt fyrir sér. »Viðskiptamaðurinn« í þessu efni eru allir blaðalesendur heimsins og maðurinn, er Ro- bert L. Ripley. Ripley teiknar og lýsir nierki- legum, kynlegum hlulum og Niðburðum. Honum tekst það svo vel, að tekjur hans frá dag- blöðum, bókum, útvarpi og kvikmyndum voru orðnar orðn- ar (j milljónir króna 19,33. — Þessi starfsemi hans hófst ár- ið 1918. Ripley var íþróttateikn- ari við dagblað nokkurt og eins og stundum \ i 11 verða, skorli hann góða hugmynd til næsta dags í blaðið, Hann fann þá

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.