Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1944, Síða 9

Heimilisblaðið - 01.07.1944, Síða 9
heimilisblaðið 117 Jónas. Daníel. Jafningja, sem skilur sigra lians og samgleðst þeim og ber með honum ósigra hans. Sá jafn- mgi og lífsförunautur var konan. Eitt rif úr tnannsins síðu, annað ekki — en ekkert rif ég skennntilegra þckki- °rti gamankvæðahöfundur úr Yestmannaeyj- utn út af sköpunarsögu konunnar í upphafi Mósebókar. Hér á þessari ntynd yrkir annar höfundur út af sama efni. Yndisþokki þessarar myndar er einn út af fyrir sig nægilegt svar til þeirra, sem af ’ntynduðuin menningarhroka telja sig þess Utnkomna að varpa rýrð á hina barnalegu, 8aklausu sögu um koniu konunnar í heiminn, eftír kristnum trúarskilningi, án þess svo mik- tð sem að leyfa huganum að þenjast ofurlítið ut og finna jöfnuðinn milli manns og konu 1 nýju veldi, þegar hin fyrsta kona er fædd af manni, en síðan hvar maður fæddur af k°nu. Hér er ekki verið að fara með náttúru- frseðileg ar útlistanir á tilorðningu beggja ^ynjana og sambandi þeirra á rnilli, heldur 8ýnt á einföldu og ljósu máli hve líf þeirra er hvort öðru tengt og þau hafa frá upphafi ekki getað án hvors annars verið. ^að er guðleg ráðstöfun, að konan varð til. Enn dregur listamaðurinn þetta skýrl fram. 1 vinstra liorni myndarinnar neðan til hvílir Adam í værum svefni. Líkami lians myndar bogadregna línu frá láréttum flöt.og þessi bogahreyfing heldur áfram í líkama Evu, sem hefur að því er virðist sprottið fram undan síðu Adams. Með bljúgum hug og með bænastaf sézt hún vera í þann veginn að krjúpa fram fyrir Guði, sem liefur kallað liana til lífsins. Það virðist sem Guð sé þung- ur á brún. Ef til vill er liann að hugsa um þá erfiðleika, sem bíða þessara tveggja líf- vera. Hann veit, að skammt fram undan er ósigur þeirra, sá, sem kom með dauðann, vold- ugasta óvin lífsins, inn í tilveruna. Guð er hér málaður með dekkri litum, en á öðrum af þessum myndum. En eins og alltaf áður her andlit lians og persóna hæzt yfir og til hans stefnir öll hreyfing í myndinni. Fimmta myndin er: Fall mannsins og brott- reksturinn úr aldingarðinum Eden. Myndin skiptir um svið eins og nafn hennar bendir til. Til vinstri handar sézt höggormurinn rétta Evu eplið — trjástofninn, sem höggormur- inn vefst utan um, hagnýtir listamaðurinn til að skipta myndinni í sundur og rammar með honum inn þessa sorglegu óhlýðnissögu.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.