Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1944, Blaðsíða 17

Heimilisblaðið - 01.07.1944, Blaðsíða 17
Heimilisblaðið 125 °g um veturinn liafði ekki fluttur verið. Síð- 311 var byrjað að berja á velli. Áburðurinn var malinn með barefli, kvísl og klóru. Sum- ir brúkuðu slóða, en það var fátítt. Slóða dró aöaðhvort uxi eða hestur. Túnvinnsla var braslavinna, þegar áburður ofharðnaði. Þegar búið var að mylja áburðinn, var honum aus- ineð liendinni úr trogi eða breiddur út Uieð klóru. Þegar tún fóru ögn að spretta, var farið að lireinsa túnin. Það, sem ekki var komið °fan í rótina af áburðinum, var rakað sam- an í rastir og niulið eins og bægt var úr því, en ruslinu rakað saman í hrúgu. Þær voru s*ðan teknar í poka eða belg og bornar sam- 811 í haugstæði eða út fyrir vallargarð. Flesl tún voru umgirt að nafninu, en tún- garðar þurftu stórviðgerða á ári liverju. Karl- nienn og konur unnu að jöfnu að túnvinnu, en karlmenn eingöngu að garðhleðslu og húsa- gerð. ‘Sauðatað og skógviður var aðaleldsneyti, °g var mikil vinna, vor og haust, við það. Sauðburður var vinnufrekur. Karlnienn °nnuðust ær um sauðburð og þurftu oft að vaka og ganga við lambféð nótt og dag. Stund- 11111 lagðist tóan á lömbin og stundum hrafn- lnn. Stundum fæddu ær ekki, því að oft var fé svo magurt, að það lirökk á meira og nnnna. Einkum var j>að í bafísavorum. Um 8tekktíð lijálpaði kvenfólk til við lambféð. I góðum vorum var ám stíjað í þrjár vikur fyrir fráfærur. Fráfærur voru venjulega um Felgina í 9. viku sumars. Lambasetur voru 8Jaldan nema 2—3 daga. Þá voru Jrau rekin a afrétt. Smalar tóku við ánum. Sat annar a nóttunni, en liinn á daginn. Ær voru mjólkaðar þrennum mjöltum ^yrst eftir fráfærur og ætíð tvisvar á dag. Það Póttu afbragðsmjólkurær, sem mjólkuðu pott 1 mál. Sumar ungar ær mjólkuðu ekki nema nálfan pela, og voru þær kallaðar „rittur“. Áenjulegast var að velja hrúta undan beztu ^njólkuránum, og var ekki þá hugsað um aðr- ar kynbætur. Eftir fráfærur átti kvenfólk afar annríkt að annast öll mjólkurverk, heyvinnu og þjón- Ustu heimilisfólksins. Ueldfé var rúið sex vikur af sumri, en ær V0111 alrúnar tíu vikur af sumri, cf vel vor- aði og fé var í þolanlegu standi. Allt fé, nema ásauðir, var rekið til heiða. Ullarþvottur byrjaði eftir fráfærur. Ullin var þvegin úr stæku j>vagi, heitu, og síðan rennandi lækjarvatni. Ekki var ullarþvottur vandaður sem vera átti. Ull var verzlunar- vara, og var lítið skilið eftir af henni lieima, j)ó meira en síðar varð. Kaupstaðarferðir voru farnar á milli frá- færna og sláttarbyx-junar. Innlegg var ull og tólgur. Var tekinn út eins mikill kornmatur og fékkst, og þessar tegundir: Rúgur, rúg- mjöl, bankabygg, baunir og brísgrjón. Kaffi og sykur og tóbak og brennivín var líka keypt meira og minna. Fiskur og bákarl var keyptur fvrir smjör og ost eða kol. Kolagerð var Jxá rnikil, því að Jxá voru brúk- aðir íslenzku Ijáirnir, Jxurfti að smíða þá og dengja. Enn frexnur þurfti að smíða hesta- járn og margt fleira. Ivolagerð var á öllum tíma ársins, en mest fyrir sláttinn. í Keldu- liverfi var mikið af kolum keypt úr Suður- Þingeyjarsýslu. Bezta tegund af kolum kost- aði einn ríkisdal tunnan. HEYANNIR. Amboð, orf, lirífur og Ijáir, Jxurfti að vera í góðu standi, Jxegar lieyannir byrjuðu. En í jxá daga var mikið verk að smíða ljái handa 4—5 sláttumönnum, og flestir bændur gátu naumast slegið liestbófsnagla, svo að í lagi væri. Sumir gátu eigi járnað hestana sína né dengt ljáina og Jxurftu að sækja það til nágranna sinna. Það var Jxví eigi kyn, þó að heyvinnan ynnist seint. Hrífutindar voru þá úr birki; brotnuðu þeir og gisnuðu úr götunum. Sláttumaður mátti alltaf öðru liverju eyða löngum tíma til að tinda hrífuna fyrir rakstrarkonuna. Hún gerði ekkert á meðan. — Þá voru hörð cg vond steinbrýni notuð. Annboð voru þung og óhentug. Heyannir byrjuðu í 12.—13. viku og end- uðu í 21. viku sumars. Það mátti heita, að menn ynnu dag og nótt við túnasláttinn. Þar, sem tún voru harðbalaleg, vöktu sláttumenn á nóttum, þá þurrktíð var, en önnuðust hey- þurrk og hirðingu á daginn. Áframhaldið var afskaplegt, en lieyafli seintekiun. Þá var vani að „ríða út“ á sunnudagsnótt- um og sunnudögum, og voru menn oft ölv-

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.