Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1944, Blaðsíða 10

Heimilisblaðið - 01.07.1944, Blaðsíða 10
118 HEIMILISBLAÐIÐ Jesaja. Og til hægri handar sjást afleiðingarnar. Ein og umkomulaus eru þau rekin út úr para- dísinni út á eyðimörk — já, sál þeirra er eyðimörk — því andlegur gróður nær ekki að spretta, þar sem ódyggðin hefur sezt að völdum. — Þau eru rekin áfram af loga liins sveipanda sverðs, sem engillinn beitir fyrir reiðan Guð. '.".Sií S pámannamyndirnar. 1. Jónas spúmaSur. Til þess að geta fylli- lega gert sér grein fyrir þessari mynd verða menn að hafa lesið hina stuttu frásögn gamla testamentisins um Jónas spámann. Það verð- ur að vera ljóst, að Jónas spámaður hafði eitthvað saman að sælda við hvalinn og til einhvers er komið fyrir ofan við höfuð hans risinusrunna. Hvorttveggja á þetta rót sína í hinni ljómandi fallegu helgisögu, sem til okk- ar liefur borizt frá bókmenntum Gyðinga- þjóðarinnar. Það hefur mörgum orðið til ásteitingar, þeim, sem allt vilja skilja bók- staflega, að sagan segir, að Jónas hafi dvalið ]oel. þrjá daga og þrjár nætur í kviði hvalfiskj’ arins. En það má verða til að opna augw allra fyrir symbolik þessarar frásagnar, a Kristur notar hana til að útskýra með dauða sinn og upprisu, og Michelangelo notar hva ■ inn á myndfletinum til að skapa óhuguam sem hlaut að mæta þessum fótlivata bu bera Drottins, sem lagði spámannsleið siua til Nineve austur. 2. Daníel. Daníel hefur löngum verið tah inn til stóru spámannanna og hefur því ver’ ið lialdið, enda þótt guðfræðivísindum uú- tímans þyki sannað, að hann hafi ekki sjálf' ur í eigin persónu komið nærri því riti, seiu honum er eignað, eða að minnsta kosti ekki sá Daníel, sem látinn er gera kröfu til a kallast höfundur. Það er almennt álitið uu, að Daníelsbók sé skrifuð á hinum róstusömu Makkabeatímum, og notað sé gamalþekk* höfundamafn úr forsögu þjóðarinnar til a gefa bókinni enn meira áhrifamagn. K111 verður því ekki litið sem spámannsrit í huuu venjulegu nútíðarmerkingu, að sagt sé f>rir um ókominn tíma, heldur að skýrt sé frá þvl

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.