Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1944, Side 50

Heimilisblaðið - 01.07.1944, Side 50
HEIMILISBLAÐIÐ 158 komizt í kast við. Það gleður mig, að Anna er laus við yður. Komdu, Anna“. En Blake gekk í veg fyrir þau, liann liafði ein- liverju við að bæta. „Sennilega teljið þið þá fullyrðingu líka lygi, að þér liafið reynt að myrða ungfrú Vanne, með því að hrinda henni í gljúfrin“. Anna rak upp hátt og skerandi hljóð, en Morri- son var nú fyrst orðlaus, að því er virtist. En nú tók Anthony Tulloch orðið: „Guð minn góður, ef þetta er satt, þá vil ég að lögin nái til þessara þorpara hvað sem það kostar“. „Auðvitað er þetta satt“, sagði Blake, „Narice sagði mér það sjálf. Það er þess vegna, sem þau hafa talið hana sinnisveika“. Hann sneri sér að Onnu. „Hvað er orðið af litla demants-apanum, sem hún reif af hálsinum á yður, þegar þér hjálpuðuð við að hrinda henni fram af brúninni?“ Svo gekk hann nær henni og sýndi henni skraut- gripinn, en hún starði á hann eins og dáleidd. „Tony fann nokkra liði úr festinni, þar sem við- ureignin átti sér stað. Þér hafið vafalaust hinn hluta festarinnar sjálf“. „Þér eruð vitlaus — hún er vitlaus. Þið eruð öll saman vitlaus“, æpti hún og sló höndunum út í loftið um leið og hún féll áfram á gólfið. Þar skildu þeir hana eftir í umsjá eiginmanns síns. Fyrir utan dyrnar, sagði Blake við vin sinn: „Auk þess er allt lygi, viðvíkjandi hjónabandi ungfrú Vanne. Hún hefur aldrei gifzt, aldrei“. Þeir fylgdust til gistihússins við fossinn: Blake, Anthony og Hr. Vanne. Tulloch var nú ekki leng- ur dapur í bragði, eins og liann hafði verið síð- ustu vikurnar. Hann var kátur og glaður, eins og drengur. I fyrsta sinn fékkst hann til að nefna björgunarafrek sitt, þótt liann liins vegar léti lítið yfir því. Sú spurning kom líka á dagsskrá, hvort ætti að láta glæpamálið ganga strangasta lagaveg. Gagnvart því var Anthony Tulloch harður í horn að taka. Ekkert skyldi aftra því, að það gengi fyr- ir sig eftir fyllstu kröfum réttvísinnar. Hr. Vanne lét í ljós undrun sína yfir þessu, þar Bindindisfélag í Reykjavíkurbæ Auk þess lofsverða bindind*9' félags, sem kennarar hins lærða skóla og lærisveinar — þessir þjóð- arinnar tilvonandi leiðtogar " liafa stofnað, hófst annað bind- indindisfélag í Reykjavíkurbce liinn 16. janúar 1847, í fyrstu a 24 mönnum, en frá því og þanga til nú (23. janúar), hefur svo vi aukizt, að tala bindindismanna nú er 32 og er þar af ljóst, að hér um bil 100 manns liér í bænuW hafa gengið inn í þetta félag, sein gjörsamlega afneitar öllum áfeng' um drykkjum, af því að þeir eru sannfærðir um, að þeir séu mj°S svo skaðvænir fyrir líf manna °r lieilsu, og sömuleiðis velnieg1111 þeirra og loks hamli með nxörgn móti atgjörfi þjóðarinnar, bæði 1 andlegum og líkamlegum efnuWi en valdi liins vegar deyfð og at hugaleysi unt flest það, sem fram- farir þjóðarinnar eru einkanleg3 undir kornnar, nefnilega hvers konar menntun og dugnað. Ég er sannfærður um, að al 1 skynsamir og góðir menn sJaI’ hve áríðandi þetta málefni er £>r hlynni því að því eins og þel* hafa bezt föng á, hver í sinm stöðu, og láti þessi orð vera sltt viðkvæði: „Vilja Guðs, oss °? vorri þjóð, vinnum á meðan hrær ist blóð“. Reykjavík, 23. janúar 1847. St. Gunlogsen. Veturinn 1846—7 ritaði hr. jusl itsráð og landlæknir Jón Thorsien sen bækling um skaðsenn drykkjunnar. Var sá bæklingut prentaður og sendur út um a land á kostnað nokkurra félag6 bræðra. Þeir sendu út mörg ho s bréf og fengu þau aftur með mörr um áskrifendum. ., (Rvík í janúar 184»/’

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.