Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1944, Side 33

Heimilisblaðið - 01.07.1944, Side 33
HEIMILISBLAÐIÐ 141 að halda að þér óskið, að hún missi vitið, enda hafið þér reynt að breiða þann orðróm lit sem allra víðast“. „Hvernig leyfið þér yður að tala þannig við mig, dr. James, en annars þarf ekki annað en líta á yður, til þess að sjá hvílíkt naut þér eruð“. Hún gekk brott hröðum skrefum og skildi þá tvo eftir, annan undrandi, hinn reiðan. „Naut —“, hann blés á eftir þessari fögru konu, sem fjarlægðist þá. Svo sneri hann sér að Blake og sagði rólega. „Jæja, nú geturðu sjálfur dæmt um hve biluð hún er. Hún vill endilega tala við þig“. Blake flýtti sér gegnum ganginn og yfir í þann hluta gistihússins, sem sjúklingurinn átti að fá að vera í næði. IJjúkrunarkona tók á móti honum og sagði: „Hún vill ákaft tala við yður, major“. Hann læddist inn á tánum. Og liann sá það strax, þegar liann tók í hönd liennar, að allt talið um rugl- ið var hreinasti uppspuni. Augu hennar voru svo björt og fögur og vingjarnleg, að hver einasti skuggi um andlegan sjúkdóm hvarf úr liuga lians. Blake niundi hafa svarið við drengskap sinn, að hún væri minnsta kosti eins heilbrigð og hann. „Nú megið þér ómögulega þreyta yður“, sagði hjúkrunarkonan. En Narice brosti til hennar og sagði: „Þau hafa víst ekki enn sannfærzt um að ég hafi járntaugar“. Rödd hennar hafði ekki enn náð sín- um eðlilega yndisleika. „Járntaugaf44, sagði Blake glaðlega, „nei, taugar þínar eru vir stæltasta stáli“. „Er það nú bull“, sagði hún og tár glitraði í aug- um hennar. Eftir augnabliksþögn sagði hún aftur: „Eitt gott hefur þó af þessu leitt. Ríkur Ameríku- Uiaður hefur boðið 250 pund fyrir málverkið af fossinum. Svo hátt hef ég aldrei áður komizt“. „Ætlið þér að selja?“ „Já, auðvitað, það er margt liægt að kaupa fyr- ll' tvö hundruð og fimmtíu pund. Auk þess vil ég að Ameríkumenn sjái, að hér eru fallegri fossar eu Niagara“. þær fagrar að líta, umhorfnar rauðleitum hraunbjörgum við him inbláma og dökkblátt haf. Hawaji ber, allra eyja í heimi, liæst fjöll. Ekki nema fáeinir tind- ar Alpafjalla eru jafn liáir og Mauna Ira og Mauna Kea-tindar, og Haleakea á Moui er jöfn Etnu að liæð og flatarmáli. Bæði stærstu eldfjöllin, sem í gangi eru í heimi, Kilanea og Mauna Loa, eru á Hawaji. Loftslag eyjanna er svalara en annarra landa sömu breiddar, og valda því svöl sævar- föll að norðan að sumu leyti, og norðaustan staðvindur að sumu. Staðvindurinn hlæs um eyjarnar árið um kring, en fellibyljir virð- ast ekki heimsækja eyjarnar, þótt þeir geri annars svo oft vart við sig á Kyrrahafinu. Meðalliiti árs er um 24° C., í ágústmánuði getg komið fyrir 33° og í febrúarmán- uði 20° C. Vitaskuld breytist hit- inn mjög með liæð yfir sjávar- flöt. Staðvindurinn færir norðaustur- hlíðum fjalla mikið regn, og mjög greinilegan mun sér því ætíð á hlíðum að fjallabaki og hlíðum andviðris. Yfir liléshlíðum ríkir lieitt þurraloftslag með þrifalitl- um jarðargróðri, en andviðrishlið- in er svalari með rigningum mikl- um og þróttmeiri gróðri, er klætt hefir fjallahlíðarnar þéttum skóg- um. Vitaskuld er fyrst að lýsa jurta- og dýraríki eyjanna, því að þau eru nátengd mönnum og landnáms sögu þeirra. — Munnmælasögur eiga Hawajii búar um Pele. Hún bjó á Kaliiki (Samoa). Hún var svikin af bónda sínum og lagði þá af stað með mörgum systkinum sínum til að leita að betri vistarveru. Hún fann Hawaji og settist að á fjalli á Oa- hu í fyrstu, síðan fluttist hún að eldfjallinu Haleakea og að lok- réði hún fyrir Hawaji og síðan

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.