Heimilisblaðið - 01.11.1950, Qupperneq 36
192
HEIMILISBLAÐIÍ)
Bækup til jólagjafa
Ef þér lítið yfir eftirfarandi skrá, þá munuð þér samifærast um, að þar er að finna bækur
við hvers manns liæfi, ungra og gamalla, karla og kvenna:
1. Sögur ísafoldar, 4. bindið' er komið, en fyrri
bindin eru því nær uppseld. í þessu bindi er
m. a. Vendetta.
2. Æfisaga GuSmundar FriSjónssonar, skráð af Þór-
oddi syni hans.
3. Norrœn söguljóð, eftir Matlbias Jochumsson. í
þessari bók eru Ijóðaflokkarnir Friðþjófssaga, eftir
Tegner og Bóndinn, eftir Hovden, báðir skreyttir
myndum.
4. Afdalabarn, eftir Guðrúnu frá Lundi. Þið munið
eftir Dalalífi. — Afdalabörn gerist á söinu slóðum.
5. tíjössi á TréstöSum, unglingasaga, eftir Guðmund
L. Friðfinnsson, bónda að Egilsá í Skagafirði.
6. SnorrahátíSin. Myndir frá Snorrahátíðinni, ræður,
ávörp og lýsing á hátíðahöldunum. Jónas Jónsson
sá um útgáfuna.
7. Dulannögn Egyptalands, eflir Brunton. — Guðrún
Indriðadóttir þýddi. Bækur Bruntons eru afburða
skemmtilegar og vel ritaðar.
8. Nonni. Hvert mannsbarn á Islandi kannast við
bækur Jóns Sveinssonar. Þær voru lesnar á hverju
heimili, næst á eftir Bernskunni, eftir Sigurbjörn
Sveinsson. Nonni er 4. bókin, sem kemur út af
safni Nonna-l)ókanna.
9. Bernskan. Heildarúlgáfa af verkum Sigurbjörns
Sveinssonar, eru tvö bindi, Bernskan og Geislar.
Bækurnar eru gefnar út í fallegri útgáfu, með
myndum eflir danska teiknarann Falk Bang,
Tryggva Magnússon, Halldór Pétursson o. fl. Nú
eru aðeins örfá eintök eftir af þessari vinsælu bók.
10. Mamma skjlur allt, eftir Stefán Jónsson. Islenzkir
lesendur kannast við Hjalta litla. Þessi nýja bók
er framhald af Iljalta.
11. VirkjS í norSri, eftir Gunnar M. Magnúss. Þelta
er 3. og síðasta bindið og lýsir atburðum ófriðar,
ins á sjónuin við strendur landsins og áhrifunt
þeirra á líf þjóðarinnar. Auk þess eru þar myndir
af öllum Islendingum, sem fórust á sjó af ófrið-
arástæðum.
12. Gröndal. I fyrra kom út fyrsta bindi af verkum
Benedikts Sveinbjarnarsonar Gröndals. I þessu
bindi eru greinar hans, ritgerðir, bréf o. fl.
13. Eiríkur Ilansson, eftir Jób. Magnús Bjarnason.
14. Litli dýravinurinn, sögur og ljóð eftir Þorstein
Erlingsson. Mest af því, sem þarna kemur, birt-
ist áður í gamla dýravininum og sömu vinsælu
myndirnar, sem fylgdu sögunum þar, skreyta
bókina. En auk þess hefur Ragnhildur Ólafs-
dóttir teiknað nokkrar fallegar myndir.
15. Bólu-Hjálmar. — Ileildarútgáfa af verkum Bólu-
Hjálmars í fallegu skinnbandi.
16. Einar Benedikfsson. — Ljóðasafn Einars í vönd-
uðu skinnbandi.
17. Bláskógar, ljóð Jóns Magnússonar, bundin í vand-
að skinnband.
18. tslenzk úrvalsljóS, eftir öll helztu 1 jóðskáld ís-
lendinga, tólf bindi, bundin í alskinn og gyllt
í sniðum.
19. Gömlu ljóðabækurnar Snót, Svanlivít og Svava.
Þetta eru ennþá vinsælustu ljóðasöfnin, sem út
bafa verið gefin og verða lengi.
20. íslenzk nátíma lyrikk. Ljóðaúrval í framúrskar-
andi fallegu bandi.
21. FerSaminningur Sveinbjarnar Egilsson. — Ferða-
minningarnar eru í tveimur bindum, skennnti-
legar og fróölegar.
22. Sjómannasaga, eflir V. Þ. Gíslason skólastjóra.
Fróðleg og skcnnntileg lýsing á lífi íslenzkra sjó-
nianna, skreytt miklum fjölda mynda.
23. Sjósókn, endurminningar Erlends Björnssonar á
Breiðabólstað, skráðar af séra Jóni Thorarensen.
24. Saga Vestmannaeyja, mikið verk og fróðlegt, eftir
Sigfús M. Johnseu.
25. Barbstrendingabók, eftir Kristján Jónsson frá
Garðsstöðum.
26. Saga Strandamannu, eftir Pétur Jónsson frá Stökk-
um.
27. íslenzkir þjóóhœttir, cftir Jónas Jónasson frá
Hrafnagili.
28. Eiríkur á Brúnum, lieildarútgáfa, Vilbj. Þ. Gísla-
son bjó undir prentun.
29. Lœknar á íslandi, eftir Vilmund Jónsson land-
lækni. Merkilegt beimildarrit.
30. LífiS og ég, eftir Eggert Stefánsson söngvara er
ein af þeim bókum, sem mesta athygli hafa vakið
á þessu hausti. Eggert hefur sérstæðan og glamp-
andi stil.
31. Á liverju lieimili ætti að vera til Sálmabókin,
Biblían í myndum (inyndirnar eftir listainanninn
Doré), Bœnabókin, eftir séra Sigurð Pálsson i
Hraungerði og Nýjar Hugvekjur.
Snúið yður til næsta bóksala eða beint til
Bókaverzlunar ísafoldar
Mmtsbóhascifni&
á flh
ureun