Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1954, Blaðsíða 9

Heimilisblaðið - 01.01.1954, Blaðsíða 9
okkur er hópur kvenna að lauga sig. Þær fórna höndum mót hinni risandi sól. Þrisvar sinnum taka þær vatn í lófa sér og kasta til austurs: — Þú guð hinnar rísandi sólar, ég til- bið þig. Síðan dýfa þær sér þrisvar sinnum í vatnið upp fyrir höfuð og hafa yfir bænir. Fljótið, sem Indverjar segja að eigi upptök sín á himnum, er hér slegið lit moldarinnar. I augum Vesturlandabúans er þetta skaðræðisfljót, fullt af kóleru, malaríu, taugaveiki, kúabólu og svartadauða. En í augum þessa fólks erþettafljót- ið helga, blessað af hundruðum helgra manna og dýrlinga. Og alþýðan trúir því, að sá, sem baðar sig í þessu vatni, verði hreinn bæði á sál og líkama. Konurnar koma nú upp úr fljótinu og láta sólina þurrka sig. Þær greiða hár sitt, smyrja arma sína upp úr mustarðsolíu, unz þeir gljá eins og eir í morg- unsólinni. Síðan lyfta þær liörf- um fullum af grænmeti og ávöxtum upp á höfuð sér og halda heimleiðis til morgun- verka sinna, því óþvegin má indversk kona ekki koma inn í sitt eigið eldhús. Við göngum af stað niður með fljótinu. — Þetta er Dasasvamet Ghat, segir Ramakristna og bendir á eitt musterið. Á tröpp- um þess situr hópur manna og hlýðir á fræðara sinn. Þessi kennir Ramayana og Bagavad-Gita, segir fylgd- armaður minn. Þeir kunna að vísu hvorki að lesa né skrifa enn sem komið er, segir hann og lítur á lærlingana. Kennslan er munnleg og þeir verða að kunna bækurnar utan að. [ skugga gullna musterisins situr maður í yogastelling- um og horfir á fljótið. Rama- kristna segir mér, að þetta sé helgur maður, einn af spá- mönnum borgarinnar. Árum saman hefur hann ■setið hér og hlustað á þessa voldugu hljóm- kviðu aldanna, sem þúsundir handahafa reyntað höndlameð því að meitla hana í málma jarðarinnar og höggvasérguða- líkneski og musteri úr marm- ara, gulli og grjóti. Þessi mað- ur lætur sér nægja að hlusta. — Og hver er svo niður- staða þessa manns? spyr ég ósjálfrátt. — Ég veit ekki, segir Rama- kristna, við getum spurt hann sjálfan, ef þú vilt. Við nálgumst þennan ein- kennilega mann. Hann tekur okkur vel. Svipur hans er mild- ur og góðmannlegur. Innan stundar er hann farinn að ræða um trú sína. — Ég þykist vita, segir hann og beinir máli sínu til mín, að þér þyki siðir okkar undarleg- ir, en samt er þinn Guð minn Guð. Það að vísu satt, sumir beina bænum sínum til fljóts- ins, til sólarinnar eða til fjall- anna, en skiptir það nokkru máli? Birtist ekki sami andinn í öllum gervum náttúrunnar? — Jú, ef til vill get ég fallizt á það. En eigum við þá að trúa á stokka og steina? Svipur þessa töframanns breytist ekki neitt við þessa spurningu. Hann er jafn mild- ur og rólegur og áður. Hann þegir um stund, og mér finnst hann vera að ígrunda þennan barnaskap okkar Vesturlanda- búa, að skipta öllu niður í flokka og stefnur. Og svo tekur hann til aftur, brosandi, eins og ^atlP væri að tala við börn. — ^aÍD skiptir ekki máli, segir hana Kannske tilbiðjum við Þetia fljót eða laufið á þessu b hérna, eða fuglinn fljúga11^1 Allt þetta er skapað af alníSt't inu og almættið birtist í öHu11 þessum hlutum, og frá öHua| þessum hlutum liggja leiðir ^ þess máttar, sem stendur baki allra veralda. Þið balb það Guð eða Jehóva, við ku' um það föður, móður eða a eins það. Við köllum það ^ Rama eða Harí, Visnú eða Siya Nafn er aðeins nafn. Það skiP ir ekki máli. Þú mátt ka þennan mátt, hvað sem þu v og samt verður þinn Guð Guð. Allar þessar trúarde1^ verða til milli manna, sem a ei hafa skilið, hvað trú er- Og þar með gefur þessi gatn ^ maður okkur blessim sma. við höldum áfram niðm- 111 fljótinu, þangað sem líkelda1^. ir brenna. Indverjar grafa lík, heldur brenna þaU- ^.. brenna tveir eldar, og Þrl bálkösturinn stendur Og presturinn heldur hlaði1111 við hlið þeirra. Lík að mennis er borið þangað 3 kviktrjám og lagt á kösti^ Einn af fylgjendunum, maður, líklega sonur ^ látna, ber eld að viðnum- ur tónar fram nokkrar m011 ur úr Vedabókum. FöUr arnir læsa sig um líkið og upp í sólskinið. Enginn aittW líkel^ þ arn að tóna möntrur sínar. 6rU eiíiti fyfmkænir, held- j eillaóskir til hins framliðna 1 , m bins nýfengna frelsis. ij S 6r öskunni kastað í fljót- lát S6lU rennur bjá jafn hljóð- y,°® dulúðugt og áður. ‘Hn * een£urn frá þessum eldi Pil ^ rnust:eri Siva, þar sem kfa5rimar hvaðanæva að við brunninn helga, því (j^^6111 drekkur vatn úr þess- ÖU Unni- er sagður hreinn af y.ttín syndum og yfirsjónum. ^aiUaltristna trúum ekki afl'ntlan brunn fremur en aðra C?S01U °g göngum út í Hok^erisgarðinn, þar sem við rai" ltonur krjúpa í bæn r;ttJ^tur gamals trés. I krækl- st . 111 greinum þess hanga i nvölur, sem þar hefur verið ^ . ^etta er frjósemistréð, V-lr Ramakristna, þessar jvj 1 eru óbyrjur. Þær trúa !áiú þvl að bera í hári Sftiástein úr farvegi Gan- ^ 6 nengja hann upp í grein- t).*. Ssa trés, geti þeim síðar *]|s barns auðið. Hér ríkir ósi^.-^^^ðar hinn dularfulli og " lanlegj an(jj Hindúismans. yflrgefum þennan garð i ,.,Öldum niður til Sarnath U-Ss Verli borgarinnar. Hér á KddvÚ* si:oð Gautama fijjl a fyrir tvöþúsund og Undruð árum og hélt ,lyrsi:u ræður um veginn, i5gUr frá stríði og þján- þe: endunum við þessa þrja 1 , u tll f^ Qg Hfshamingju fellir tár. Hér er dauðmu Sr se& mikli læknir þess manm>i , * fj-el5 engin meðul gátu læknao, ^ ari þess anda, sem fjötra^ var í hrörlegum líkama í snúnum og formyrkvU VeBur þýddi samúð með ttrn °g dýrum. Á þessum p!'fnclur nú háreist súla íörum ljónshöfðum, og 'Vt heimilisb IP , li;t i norður, annað í suð ' nriðja í lMlLl8BLAÐIÐ austur og fjórða í vestur. Þessi ljón eiga að tákna meistarann, sem hrópar boð- skap sinn til yztu marka jarð- arinnar. En Gautama Buddha er horfinn og steinljónið þegir. Og þó leika dádýrin sér hér óáreitt, því að hér, jafnvel eftir 2500 ár, leyfir enginn sér að spilla friðhelgi þessa staðar. Og hér skammt frá þessu minnismerki er einn af síðustu spámönnum Benaresborgar að flytja ræðu í menntaskóla staðarins og ræða við ung- menni um þær leiðir, sem á okkar tímum eru færar, til að fá mannkynið til að snúa aft- ur frá vegi stríðs og, þjáninga til friðar og lífshamingju. Þetta er miðaldra maður, klæddur að hætti manna á Vesturlöndum og heilsar með handtaki Vest- urlandabúans, en ekki með Na Maste-kveðju Indverjans. Þessi maður hefur farið víða um Vesturlönd og boðað þar kenn- ingar sínar, en nú er hann hér ’og þrátt fyrir allt skilgetinn sonur þessarar borgar. Nafn hans er Kristnamurti. Við Ramakristna dveljumst hér það sem eftir er dags, borð- um indverskan mat og ræðum um sögu staðarins. Sólin er gengin til viðar, þeg- ar við leggjum af stað heim á leið. Það er tunglskin og stjörnubjart. Við göngum upp með fljótinu, sem sindrar í þessu austurlenzka mánaskini, ójarðneskt og dult. Líkeldarnir brenna enn, þeir slokkna hér aldrei, hvorki dag né nótt. Og gamli yoginn situr líka á sín- um stað á tröppum gullna musterisins. Svipur hans er fjarrænn, og í tunglskininu lít- ur hann út eins og dýrlings- mynd á gömlu málverki. Við ónáðum hann ekki að þessu sinni, en höldum þegjandi fram hjá honum: hvers virði er hon- um þessi heimur nafns, forms og siða, menn, sem vita, að allt er eitt og allt er allt, þurfa hvorki að heilsast né kveðjast. Þeir koma aldrei og þeir fara aldrei, þeir aðeins opna og loka augum vitundarinnar til skiptis, gleyma að vísu um stund, en svo koma þeir aftur, þekkja bræður sína og heim sinn, og vita að allt er allt, og þá hætta þeir að heilsast og kveðjast. Skólinn við Dasasva- met Ghat er hættur, en í hans stað eru hér margir prestar og syngja messur með söfnuðum sínum. Sungin eru trúarljóð úr hinum fornu ritum, en ofar upp við musterin sitja yogar og helgir menn einir sór og hlusta og þegja. Konur borgarinnar eru komnar hingað aftur — til sama staðar og þar sem þær böðuðu sig í fljótinu í morgun. Að þessu sinni ganga þær að- eins niður að fljótinu með lít- inn tágafleka og leirker í hendi. Niðri við fljótið kveikja þær á litlum kertum, sem loga glatt í kvöldkyrrðinni. Þær setja kertin í leirker sín, sem þærsíðan leggjavarlega á tága- flekann. Kringum leirkerin leggja þær blóm, hvítar liljur og rauðar rósir. Síðan ýta þær þessu skipi vonarinnar út á fljótið — út í nóttina. Og hér stöndum við öll og horfum á þessi litlu skip næt- urinnar, á þessi blaktandi ljós í brothættum leirkerum og á þessi rauðu og hvítu blóm. Allt þetta eru bænir og vonir mann- anna, sem Ganges, fljótið helga, ber með sér inn í eilífð- ina. [4] [5]

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.