Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1956, Blaðsíða 32

Heimilisblaðið - 01.03.1956, Blaðsíða 32
hafði heyrt það einu sinni áður. Það fór um hana skjálfti, og ósjálfrátt gerði hún tilraun til þess að breiða út faðminn á móti hinu ósjálf- bjarga afkvæmi sínu. Fagnaðartilfinning fór um hana, ný, áður óþekkt hamingja gagntók hana. Hún hafði al- drei fimdið til slíkrar hamingju áður. Hún öðl- aðist nýjan þrótt, bæði á sál og líkama. Hún var orðin móðir. Hún vildi sjá barn sitt. Það hafði hvorki hár né neglur, enda var það fætt fyrir tímann. Það var drengur. Þegar hún sá þennan litla vesal- ing gráta, strauk hún honum blíðlega. Hún fylltist óstjórnlegum fögnuði. Nú fyrst skildi hún, að hún var orðin heilbrigð. Örvæntingin gat ekki lengur náð tökum á henni. Hún hafði eignazt son, og hún elskaði hann, elskaði hann svo heitt, að það var ekki rúm fyrir neitt ann- að í hjarta hennar. ★ Frá þessum degi hafði hún allan hugann við barnið. Hún var öfgafull móðir. Það var eðli- leg afleiðing af mótlæti hennar í ástum. Vagga barnsins varð að vera fast upp við rúmið henn- ar. Þegar hún var komin á fætur, gat hún all- an daginn setið við gluggann og vaggað litla snáðanum. Já, hún var næstum því afbrýðissömu við brjóstmóðurina, sem hafði barnið á brjósti. Hún sá, hvernig drengurinn rétti handleggi sína út á móti brjóstunum, sem voru þrútin af mjólk, og saug úr þeim græðgislega. Til þess að sonur hennar yrði reglulega fínn, saumaði hún sjálf fatnað hans. Hann var klædd- ur útsaumuðum fötum og knipplingum. Hún ræddi nú orðið aldrei um annað. Það kom oft fyrir, að hún skaut inn í samræður athuga- semdum um eitthvað, sem hún hafði verið að sauma. Hún hafði óstjórnlega nautn af því, að láta dást að fötum drengsins. Hún var hrifin af hrósi því, er hún hlaut fyrir útsaum sinn. Hún lyfti saumum sínum upp og sneri þeim ó marga vegu, brosti og spurði: — Haldið þér ekki, að þetta muni fara honum vel? Baróninn og barónsfrúin brostu að þessari viðkvæmni dóttur sinnar. En Julien, sem var óánægður í daglegum venjum sínum, varð hálft í hvoru afbrýðissamur út í son sinn, sem sat að allri ást og umönnun móður sinnar. Það kom heldur ekki ósjaldan fyrir, að Julien tautaði önugur: — Það er ekki hægt að þola hana með þennan unga sinn! Ást Jennýar á drengnum varð svo sterk, hún sat uppi heilar nætur hjá vöggunni og horfði á sofandi barnið. Þessi sjúklega ást dr° úr henni allan mátt. Hún naut ekki lengur hvíldar. Hún megraðist og fékk slæman hósta- Læknirinn skipaði. svo fyrir, að barnið skyl^1 tekið frá henni. Hún grét og barmaði sér, en það var dauf heyrzt við bænum hennar. Á hverju kvöldi var farið með barnið inn til brjóstmóðurinnar, °S á hverri nóttu fór móðirin fram og lagði eyr að við skráargatið, til þess að hlusta eftir, hvoít hann svæfi vært og hvort hann þarfnaðist einskis. Á einni slíkri eftirlitsferð rakst Julien á hana- Hann hafði verið í miðdegisverði hjá frú Four ville og kom seint heim. Frá þeirri stundu var hún læst inni í herbergi sínu, svo að hún neyð^ ist til að vera í rúminu. 1 lok ágústmánaðar var drengurinn skírður- Baróninn var guðfaðir hans og Lísa frsenk3 guðmóðir. Hann var látinn heita Pétur Sím011 Páll. Hann var daglega nefndur þriðja nafninu' 1 byrjun september fór Lísa frænka í burtu' Fjarvera hennar vakti jafn litla athygli og n®r vera hennar hafði gert. Kvöld nokkurt kom presturinn í heimsókn' Hann virtist dálítið vandræðalegur, eins hann byggi yfir einhverju leyndarmáli- að hafa rætt um daginn og veginn nokkra stund, bað hann barónsfrúna og mann hennar að ræða við sig í einrúmi. Þau gengu þrjú niður trjágöngin og tölu^0 saman. Julien var eftir hjá Jenný. Hann hor undrandi á eftir þeim og braut heilann unl’ hvað nú væri á seiði. ^ Þegar presturinn kvaddi, bauðst Julien til 3 fylgja honum heim. Þeir gengu saman í áttma til kirkjunnar á meðan kirkjuklukkurnar hringdu til aftansöngs. Það var tekið að kólna. Fólkið hafði ÞeSS vegna gengið inn í dagstofuna. Það sat Þa, hálfsofandi, þegar Julien kom inn, æstur skapi. Hann var tæplega kominn inn úr dyrunum> HEIMILISBLAÐIÐ 76

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.