Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1957, Page 4

Heimilisblaðið - 01.12.1957, Page 4
skapur og að enginn trúir á þá, þótt svo sé látið sem þeir gangi alls staðar ljósum log- um, með fullar hendur gersema, komi með jólatré og alls konar leikföng frá útlöndum, komi ofan af fjöllum, úttroðnir af ævintýr- um, séu viðlátnir að sækja hverja jóla- skemmtun og alltaf til taks að tala í út- varpið. Er þá ekki allt hitt skáldað ævintýri líka, englarnir og sveinninn í Betlehem, boð- skapur jólanna? Það er yfirleitt miður gott að blekkja böm, segja þeim það, sem er vísvitandi ósatt, jafnvel þótt það sé út af fyrir sig meinlaus skrökni,' flutt til gamans og í beztu meiningu. Og þegar verið er í námimda við alvarleg og helg málefni, er slíkt mjög var- hugavert. Mörg synd hefur verið og er drýgð á þessu sviði, óviljandi og í hugsunarleysi. Menn hugsa ekki út í, að þeir misþyrmi ein- lægni bama með slíku, þeirri tæru námfýsi og trúnaði, sem þeim er eiginleg. Þetta er hættan, sem stafar af jólasveinafaraldrinum. Og satt að segja er ekki ugglaust um, nema hin mikla fylking jólasveina, sem auglýs- endur og aðrir aðilar leiða fram á sjónar- sviðið um hver jól, sé næsta rúmfrek í hugar- heimurn barnanna, í samanburði við þann helga sannleik, sem jólin hafa að boða bæði ungum og gömlum. En víkjum aftur að þeim þræði, sem upp var tekinn í byrjun. Ég ætla, að jólin hafi allt fram á vora daga verið ennþá meiri hátíð með íslendingum en öðrum og sé það að nokkru leyti enn. Eitt er til marks um þetta: Islendingar eiga mikinn jólaskáld- skap, sennilega fleiri jólakvæði að tiltölu en aðrir. Skáld eru vitni um það, sem þjóð- arsálin geymir og íslenzkar bókmenntir eru glögg vísbending um ítök jólanna. Vera má, að íslenzka skammdegið hafi gert birtu þeirra ennþá áhrifameiri hér en annars stað- ar. Um orsakir þessa mismunar skal ekki rætt hér né nánar farið út í það, hvort hann sé staðreynd eða ekki. En svo mikið er víst, að jólin hafa verið hin bjarta, skínandi perla á ársins hring í vitund þessarar þjóðar um aldaraðir. Það er næsta skammt síðan há- tíðabrigðin voru fólgin i mjög svo [áteek^ * líi um efnum á vorn mælikvarða, sem nu um: Moldargólf bæjarins voru sópuo tekið til á syllum og pöllum, nýr hroði ^ inn undir rúmin, steypt kerti og s°_ hangikjöt. En barnið lifði það, sem ení*1^ íburður getur skapað: Helgi, það fann í nánd við hið heilaga, himneska. Það 11 þetta í gleði sinni yfir kertinu á rúms^^ anum og nýju, heimaunnu flíkinni, en « ' og fremst lifði það helgina í þeirri djnP lotningu, sem hvíldi yfir svip og fasi 1 orðna fólksins, þegar jólasálmurinn var * xT' inn upp og húslesturinn lesinn: ,,JNU byrjuð blessuð jól . . .“, ,,Og það bar & þeim dögum . . .“. Upp af minningum um slíkt helgihal^ e^ sum fegurstu kvæði íslenzkra bókmenI1^ sprottin. Þau eru flestum kunn. En þa^ s ^ ar ekki, þótt vér rif jum fáein þeirra upP p Jólin í Skógum í Þorskafirði fyrir síðustu öld hafa ekki verið haldin a irr* s ú mannlegan hátt. En Matthías minnist þel jóla rúmlega hálfsextugur að aldri minning fæðir af sér ljóðperlu, sem lelt um aldur í heimi íslenzkra bókmennta- Fullúel man ég fimmtíu ára sól, fullvel meir en hálfrar aldar jól, man það fyrst, er sviptur allri sút sat ég barn með rauðan vasaklút. Kertin brunnu bjart í lágum snúð, bræður fjórir áttu Ijósin prúð, mamma settist sjálf við okkar borð, sjáið, ennþá man ég hennar orð: „Þessa hátið gefur okkur Guð, Guð hann skapar allan lífsfögnuð, án hans gæzku aldrei sprytti rós, án hans náðar dæi sérhvert ljós. Þessi ljós, sem gleðja ykkar geð, Guð hefur kveikt, svo dýrð hans g®lu^ S Jólagleðin ljúfa lausnarans leiðir okkur nú að jötu hans." Síðan hóf hún heilög sagnamál, himnesk birta skein í okkar sál, aldrei skyn né skilningskraftur minn sldldi betur jólaboðskapinn, Margan boðskap hef ég hálfa öld heyrt og numið fram á þetta kvöld, 224 — HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.