Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1957, Side 5

Heimilisblaðið - 01.12.1957, Side 5
sem mér kveikti ljós við ljós í sál, — 'jós, sem oftast hurfu þó sem tál . . . . Ljá mér, fá mér litla fingur þinn, jjúfa smábarn. Hvar er frelsarinn? ^yrir hálmstrá herrans jötu frá hendi ég öllu: lofti, jörðu, sjá! í’rerriur árum síðar yrkir Matthías annað , _ væði (hann orti mörg fleiri) og býður átíð hátíða“ að koma enn blessaða: Séð hef ég þinn sextigu vetur ljósbaðm lýsa lýða hreysi. Leit ég hann fyrst í litlu kerti meinlaust barn við móðurkné. ■ Þá var ljós, ljós, og ég lét mér nægja lítinn stúf, — því mér lýsti Guð. Sá ég seinna suður með Englum jólahallir jörmunháar logum lýstar og lýsigulli, skrúði og skrauti svo að skar í augu. Grét ég Guði góðum tárum minnugur minna móðurbyggða. „Vert' að veröld", varð mér að orði, — „glottað get ég að glysi þínu". Hygginda sál, sem í húmi starir lúin og leið á ljósaskiptum: Hverf til baka, ver barn á ný, svo að þitt guðsljós glæðist aftur. Les og lít í letri fornu hærri speki en spillta tíma, dýpri spám drembins hjarta, ynnilegri efans fræði. Kveikið mér jól í Jesú nafni, elska, yndi og æskuljómi. Bú oss í brjósti blessað guðspjall, blessað guðspjall, þú ert barnið í oss. Jón Magnússon lýsir vel heilögum jólum í baðstofu fátæks heiðarbýlis í kvæðaflokkn- um „Björn á Reyðarfelli“: Loks var komin heim í hlaðið hátíð ljóssins, glæst og tigin. Barnaaugun óraleiðir eygðu hana gegnum skýin, nú var hún með allra óskir inn í þeirra fylking stigin. Föður sínum Leifur litli létti störfin allan daginn. Ærnar rak hann út að lindum, eldiviðinn dró í bæinn. Jötusalla fyrir fugla fleygði úr lófa út á snæinn. Þraut að kveldi annir allar. Yfir bænum Drottinn vakti, norðurljósa breiðabliki bláa, víða hvelfing þakti. Mamma, unnar eigin höndum, öllum gjafir sundur rakti. Vakir margar myrkar nætur móðurhuginn einn í förum. Enginn jólaköttinn klæddi. Kysst var mamma heitum vörum. Engin börn um alla jörðu undu betur sínum kjörum. Kvöldið leið sem ljúfur draumur. Ljómaði sérhver hlutur inni, eins og þúsund ljósum lýsti lampinn gamli að þessu sinni, og í kringum kertin litlu krans af stjörnulogum brynni. Gamla bók i brúnum spjöldum Björn tók þá af hillu niður. Nú fannst engum langur lestur, HEIMILISBLAÐIÐ — 225

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.