Heimilisblaðið - 01.12.1957, Qupperneq 42
Lífið kallar
Dag nokkurn, þegar Frans af Assisi stóð
og gróf í garði sínum, var hann spurður,
hvað hann myndi gera, ef hann fengi allt í
einu að vita, að hann lifði ekki til sólseturs.
Hann svaraði: ,,Ég myndi ljúka við að grafa
garð minn.“
, Að mínum dómi á þetta svar erindi til
okkar, sem nú lifum — og þá sérstaklega
til ungu kynslóðarinnar, sem er huglaus
vegna þess að þurfa að heyja lífsbaráttuna
í þessum ótrygga heimi.
Við getum ekki verið örugg um neitt,
segir unga fólkið, hvorki nú né á næstu ár-
um né þar næstu árum. Hvers vegna ættum
við að vera að reyna að skapa okkur til-
veru? Hvers vegna ættum við að leggja
stund á nám, taka próf, gifta okkur, eiga
börn eða skapa okkur lífsstarf? Hvers vegna
'*• mála mynd eða semja lag eða byrja að skrifa
bók?
Frans af Assisi svaraði því með þessari
einföldu setningu: Haldið áfram að grafa í
garði yðar. Verkefnin eru óþrjótandi, og þau
bíða okkar —- húsið, sem þarf að smíða,
bókin, sem á að skrifa, prófið, sem þarf að
standast. Ef framtíðin er ekki björt, þá
hugsið út í, að hún hefur verið það svo oft
áður. Hversu svartar sem horfurnar eru og
hversu mjög sem við óttumst nóttina, þá
erum við betur undir lífsbaráttuna búin, ef
við höfum hingað til notað tækifæri okkar á
réttan hátt. Lífið bíður okkar, og það er
skylda okkar að lifa því af heilum hug.
— Dorothy Van Doren.
Póstkröfurnar.
Nokkrir eiga enn óinnleystar póstkröfur. Látið
ekki lengur dragast að innleysa þser, þar sem þér
nú hafið fengið allan árganginn.
Útsölumenn!
Munið að senda blöð, sem hjá ykkur kynnu að
liggja frá fyrri árum.
Vitranir frá æðra heimi,
eftir Sadu Sundar Singh fást á afgreiðslu Heimilis-
blaðsins. Bókin er óvenju ódýr, kostar 15 krónur,
og er send með póstkröfu þeim er óska.
262 — HEIMILISBLAÐIÐ
Gleðileg jól
og farsælt nýtt ár
Þökkum
viðskiptin
á liðna árinu.
JÁRNVÖRUVERZLUN
JES ZIMSEN H.F.
REYKJAVÍK
Leiðréttingar. r
í 3.—4. tbl. þessa árs birtust tveir ljóðabál"
Hafliða Finnbogasonar. í 28. erindi „Vesturfn1"^
innar" hefur slæðzt villa, og er 3. ljóðlína r
þannig:
Þornatýrum það skal tjá. ^
Línubrengl hefur orðið í „Ljóðabréfi", og el
erindi rétt þannig:
Bendi alma biðja vil
bréf að Litla-Hóli
hljóti ei tálman — heldur skil
Helgu Pálmadóttur til.
í síðasta blaði (9,—10. tbl.) féll niður síðaS‘g
lína greinarinnar „Tókíó" (bls. 203). Greinin 0 ,
enda þannig: Og samt er framtíð hvíta mannsin
Asiu nátengd svarinu.
Tvær ævintýrabækur
fyrir börn.
Bókaútgáfan „Smári" hefur sent Heimilisblf^
tvær smábækur, ætlaðar til gjafa handa
börnum. Er það „Sagan um Gamla Nóa
Hrefnu á Bergi (verð 12 kr.) — og „Ævintýri
litlnn1
efdr
líalln
biftir
og Paila“ (þeirra sömu, sem Heimilisblaðið
frásagnir af, en þó önnur ævintýr). Verð
Frágangur beggja ritanna er ágætur og erU v
prýdd litmyndum á kápu.