Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 9

Heimilisblaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 9
krjúpa á kné við hlið sér. Ég gerði það strax. Mælti hún þá með tárvotum augum: »Barnið mitt, þú veizt hvað það er, sem hefur orsakað ógæfu okkar og valdið hin- ain hryllilega dauða föður þíns. Hann var einu sinni ánægður og hamingjusamur ^iaður, og framtíðin brosti við honum. Ó, sJáðu nú, hvernig hann er útleikinn af ti’amkvæmdarstjórn djöfulsins hér í heimi, afenginu. Lofa þú nú þinni sorgmæddu ftióður því, hér við helfreðnar leifar þíns hjartfólgna föður, að smakka aldrei áfenga drykki.“ Ég lofaði því, og góður Guð veit, ah ég hef haldið það heit mitt. Góðgjarnir náungar hjálpuðu okkur það sem eftir var vftrarins. Þegar voraði, gat ég byrjað að vinna og kom mér innan skamms fyrir á sklPi og gat sent móður minni nokkra aura hverju bréfi, er ég skrifaði henni. Ég ei' að græða hjartasár margmæddrar móð- ni > og heldur skal ég láta lífið, en verða 0 rúr þeirri helgu köllun minni. Ég vona an þið látið mig nú í friði og lofið mér að tara.“ »Nei, Jón, sögðum við allir einum rómi, og augu okkar flutu í tárum. „Við sleppum her ekki. Héðan í frá bragðar enginn okkar a enga drykki. Við fengum lánaðan pappír u? ri.tfæri og skrifuðum allir undir skuld- mdingarskjal. Og enginn okkar hefur síð- anneytt áfengra drykkja. ... ipstjóra undraði mjög, er við komum ^&lr ódrukknir til skips um kvöldið; sá nn strax að breyting var á okkur orðin, ^ spurði hverju sætti. Sögðum við honum og sýndum honum skjalið. Varð hann ^inilega hrærður og bað okkur að leyfa sér umgeyma skuldbindingarskjalið og gerð- , Vlð það, og vorum lengi í förum með essum veglynda skipstjóra. ^ . °n Small er nafnkenndur, vel efnum helc)11 °g a ástríka konu og börn, og ég ej , ’ a.h hinir allir séu lifandi og virtir og u adlr öllum. Fyrir 4 árum síðan hitt- ine-S -V^ aÞlr 1 húsi Astors milljónamær- heit'ð^ ^ew York og hafði enginn rofið niaft1 ’ ^Jorir voru skipstjórar, einn kaup- Nú Ur- °? einn nýskipaður konsúll. — hn Vei^ eg’ Þ1® misvirðið ekki við mig, Þo eg hafni víni.“ annig var saga skipstjóra Nútters. iElMlLlSBLAÐIÐ LéttúS — cí byrjunaróticji Smásaga eftir Paul-Louis Hervier. LOFTIÐ ER HLÝTT og kyrrt, og lágvær óm- ur hljómlistar frá útvarpinu eykur á kvöld- friðinn. Frédéric situr niðursokkinn í blað- ið; Helena lætur sig dreyma. Með þögn sinni breiðir hún yfir sjálfsásakanir þær, sem angra hana hið innra, því hún hefur ekki metið sem skyldi hinn dygga og til- litssama eiginmann, sem með stökustu ást- úð og elskusemi hefur veitt henni þægilegt og áhyggjulaust líf. Nú virðir hún fyrir sér gránandi hár hans, og augu hennar glitra af tárunum sem brjótast fram í hvarmana. Þau eru ekki ung lengur, og nú eru mörg ár liðin frá því þeim kom saman um að fylgjast að á lífsleiðinni — hún: blíðlynd, full trúnaðartrausts og bjartsýni; hann: ef til vill nokkuð harðlyndur og fastur fyrir, en eins heilsteyptur og heiðarlegur sem nokkur maður gat verið. Skömmu eftir brúðkaupið kom hann heim eitt kvöld gleiðbrosandi, með ertnis- glampa í augum, og rétti henni litla öskju. „Þetta átt þú að eiga — þetta er fyrsta léttúðarsporið, sem ég stíg. Þú átt að geyma það til minningar um hamingju okkar. Kannski hefi ég ekki átt að kasta svona miklum peningum á glæ. En ég veit, að ég mun aldrei sjá eftir því — því að fegurð þín á það margfaldlega skilið.“ Askjan reyndist innihalda skínandi fagra perlufesti. Helena klappaði saman lófum af ánægju, setti festina óðara um háls sér, virti spegilmynd sína fyrir sér í hrifningu — og hvítt endurskin perlanna féll henni í augu líkt og uppfylling allra fegurstu og leyndustu drauma hennar. En dag einn, er hún skrapp til gullsmiðs til að láta gera við læsinguna, hrundi sá draumur til grunna jafn skyndilega og hann hafði birzt henni í fyrstu. Um leið og hún rétti gimsteinasalanum 141

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.