Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 31

Heimilisblaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 31
herrasetrinu, þegar Jordano stökk skyndi- lega fram og sagði: „Ég 1 á á hleri og heyrði, þegar hallargreifinn lét senda mann til Perona til þess að biðja um vopnaða iögreglu. Það er kannski gert þín vegna.“ >,Það var ráðizt á mig.“ „Ég þekki alla söguna. Hún getur komið UPP um þig. — Það hefði verið betra, úr hví sem komið var, að pyngjurnar hefðu Verið teknar af fólkinu.“ „Ég ætlaði einmitt að fara að taka mína UPP, en upphrópunin var áður en ég vissi af komin yfir varir mínar.“ „Sendiboðinn kemst ekki til Perona. Um bað hef ég séð, en ...“ „En því er samt ekki að treysta áttu við?“ . „Ætlar þú að hætta á það að fara þarna lnu aftur?“ „Ég verð nú að skjóta þeim dálítinn skelk í bringu — og þó veit ég ekki vel, vað ég á að gera. ertu reiðubúinn að Senda menn til mín, ef ég gef merki. — Við neytum matar þarna úti á veröndinni.“ A leiðinni rakst hann á Oriane, sem var a tína blóm í garðinum. „Eruð það þér?“ sagði hún. „Ég er rædd við yður, ef þér eruð töframaður, °g Seuð þér það ekki, þá hræðist ég yður samt.“ „Þér hafið þegar fengið að reyna það, að ,1® þurfið þér ekki að óttast,“ svaraði Rin- aldo. ag’’®S vil vera hreinskilin við yður. Ég ætla , ge.^a yður þennan blómvönd, ef þér V&gjið pyngjur með upphrópun einni saman.“ ’)Þer kunnið það.“ „Enginn undanbrögð! Trúið mér heldur yrir þessu.“ Samræður þeirra voru truflaðar, því að tii&r . reifirm kom þar að og bauð þeim veizlunnar. Rinaldo var annars hugar og ns var vandlega gætt. lr borðum voru sögur sagðar. Þegar ei Var að segja margar sögur, kvaðst ræi -lænhan hafa sögu að segja af sjálfum llngjaforingjanum Rinaldini. ” egðu okkur hana,“ sögðu veizlugestir. þ ”"lllu sinni sat Rinaldini í veizlu, án s menn bæru kennsl á hann ...“ Rinaldo tók fram í fyrir henni og sagði: „Með fjórum konum á verönd — ekki rétt? — Ég kann þessa sögu og gæti sagt ykkur hana.“ „Haldið sögunni lítið eitt áfram og þá skal ég segja yður, hvort saga mín er hin sama og yðar.“ „Voru ekki fjórar konur við borðið, sem Rinaldini sat við?“ spurði Rinaldo. „Ég veit ekki, hvar það var. Menn þekktu hann ekki, eins og ég sagði áðan, en um hann var margt sagt. Menn bæði hrósuðu honum og níddu hann. Sérstaklega var ábóti einn stórorður í hans garð. Rinaldini varð gramur og spurði hann, hvort hann þyrði að viðhafa þessi ummæli upp í opið geðið á Rinaldini sjálfum. Hinn svaraði því játandi og sagðist óska þess að fá einhvern tíma að sjá þann þorpara augliti til aug- litis. Hann stendur hér frammi fyrir þér, sagði Rinaldini, um leið og hann stóð upp. Ábótinn fölnaði upp, kraup niður og bað auðmjúklega fyrirgefningar. Rinaldini settist aftur niður hló hátt og sagði: Þér getið talað stórt, en þér eruð engin hetja, þegar þér þurfið að standa við stóru orðin. Þér félluð þegar til jarðar, þegar ég kallaði mig að gamni mínu Rinaldini, og þó er ég víst ekkert líkur þeim óttalega manni. Hvað hefðuð þér gert af yður, ef Rinaldini hefði sjálfur komið í ljós. Gestirnir hlógu dátt, og ábótinn flýtti sér á brott, skömmustu- legur á svip. Allir gerðu nú gys að hug- leysi ábótans, en þá stóð Rinaldini aftur upp. Þið skuluð ekki hlæja svona hátt, vinir mínir. Ég afvopnaði ábótann, en ég skal segja ykkur sannleikann: Það er enginn annar en Rinaldini, sem hefur setið til borðs með ykkur í dag. Um leið og hann sagði þetta, kyssti hann á hönd konunnar, sem sat við hlið hans. Hún féll þegar í öng- vit, en Rinaldini yfirgaf veizlusalinn, áður en menn komu henni til hjálpar. Allir sátu kyrrir, fölir og aðgerðarlausir . . .“ „Þetta er ágæt saga,“ sagði markgreif- inn. Oriane mælti: „Það hefði áreiðanlega liðið yfir mig, ef Rinaldini hefði snert hönd mína.“ „Hann hefur kannski elskað þessa konu,“ sagði Rinaldo. I LlS B LAÐIÐ 163

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.