Heimilisblaðið - 01.07.1962, Page 19
< Fílahúð hættir til að springa
og ekki sízt á fótunum. Það
verður þess vegna að eyða
talsverðum tíma í snyrtingu á
fílunum í dýragörðunum. Fæt-
urna þarf að þvo, slípa negl-
urnar cg smyrja með olíu.
Undarlegir farþegar komu til
flugvallarins í Diisseldorf.
Þetta voru kamelljón, sem afr-
ískt flugfélag gaf dýragarðin-
um í Diisseldorf. Hér skríða
þessi kátu dýr á flugþemunni,
sem annaðist þau á ferðinni. >
< Hér sést Lundúna-Iögreglu-
þjónn vera að handtaka þriggja
mánaða gamla Himalaja-björn
á Victoríu-stöðinni í Lundún-
um. Björninn er verndardýr á
auglýsingasýningu fyrir mið-
stöðvarhitakerfi, og við kom-
una til stöðvarinnar sá húnn-
inn sér leik á borði til að
strjúka.
Það mætti ætla, að þessi mað-
ur væri sérlegur kraftakarl,
þar sem hann getur borið 1.200
lítra tank.. Tankurinn, sem er
framleiddur úr gerfiefni og er
þrisvar sinnum léttari en sam-
svarandi tankur úr málmi.
Hann á að nota undir áburð-
arlög. >
< Flugfélagið Trans World
Airlines hefur látið öllum sín-
um flugfreyjum, 1.400 íalsins,
í té tvo nýja einkennisbúninga,
annan til sumarnotkunar og
hinn til vetrarnotkunar. Það
er siðarnefndi búningurinn,
sem unga stúlkan sýnir hér á
myndinni.
Háhýsi geta litið vel út, eins
og sézt á þessari 26-hæða skrif-
stofubyggingu í Sydney í Ástr-
alíu, stærstu byggingu í land-
inu. Húsið er hitað upp með
1,35 milljónum litra af sjó að
vetrinum en kælt á sumrin. >
lisblaðið
151