Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1962, Síða 26

Heimilisblaðið - 01.07.1962, Síða 26
„Neró.“ Hann gekk þegar í lið með Rinaldo, en þá komu fleiri menn í ljós, sem sögðu, að hermenn hefðu sezt um höllina og þeir væru glataðir. Nero bað Rinaldo að fylgjast með sér. Þeim skyldu þeir ekki ná. Neró fór með hann eftir neðanjarðarhvelfingum, þangað til þeir komust í helli einn mikinn, þar sem þeir földu sig. Þar tóku þeir tal saman, og Rinaldo spurði, hvernig hann væri hingað kominn. „Ég var í flokki Entios og var sendur með bréf til Florios, kaupmanns frá Korfu, sem staddur var í Marsala. Ég komst þá að því, að þessi Florio var enginn annar en öldungurinn okkar kæri frá Fronteja. Olimpia var hjá honum . . .“ „Olimpia?" „Ó, já. Hún hafði elzt, en var alltaf jafn yndisleg og var nú gift. ..“ „Er Olimpia gift?“ „Þannig varð hún Ventimiglia greifa- frú.“ „Hvað ertu að segja? Er Olimpia Venti- miglia greifafrú?“ „Sá gamli, sem hún var gift, virtist hæst- ánægður, en hún virtist hafa gleymt öllum hinum.“ „Og hvernig gekk þér svo í Marsala?“ „Mér leið ágætlega í húsi greifafrúar- innar þar, en svo fóru þau greifafrúin og Florio til þessarar hallar og komu mér svo í þennan kjallara, sem þér funduð mig í.“ „Og hvað voruð þið hér að gera?“ „Framleiða peninga.“ „Falska peninga?" Nú vissi Rinaldo, hvers kyns flutningar þetta voru, sem hann hafði orðið áskynja um á næturþeli, og Nero sagði honum, að slíkir flutningar hefðu átt fram að fara á þessari nóttu, en einhverjir óboðnir gestir hefðu truflað þá. „Hvernig ætli greifa- frúnni blessaðri reiði nú af ?“ spurði Neró. Þeir héldu nú frá þessum stað niður í dalinn. Á leiðinni rákust þeir á dularfulla veru, sem reyndist vera sjálfur Lodovico. Ákveðið var, að þeir Neró og Lodovico færu til Mascoli til að leita uppi öldunginn og vinkonu hans, en Rinaldo klæddist föru- mannsbúningi og hélt áleiðis til Taormina. Þar komst hann um borð í skip, sem var á leið til Sardiníu. Þar kastaði hann einsetu- mannskuflinum og hélt rakleiðis til Cagli' ari. Þar fékk hann íbúð og hóí gönguíeröii' um borgina. Dag einn gekk hann fram hja garði, þar sem hann heyrði söng og gítai’- leik. Hann fór inn í garðinn, rakst þar á stúlku eina, þóttist vilja kaupa blóm af henni. Er hann hafði fengið þau, spurði hún, hvort honum lægi nokkuð annað a hjarta. Hann spurði þá um eiganda garðs- ins og hver hefði verið að leika á gítar- Hún sagði að það hefði verið Signoi’U Fiametta, sem væri bæði auðug og ógiff- Áður en Rinaldo komst út úr garðinurUi rakst hann í flasið á sjálfri Fiamettu. Hún missti slæðu, þegar þau hittust og Rinaldo tók hana upp og fór út úr garðinum. Þegai' hann fór að athuga slæðuna féll úr henn1 pappírsmiði, sem reyndist vera vegabréf Rinaldinis sjálfs, en við framvísun þeSs áttu menn hans að láta vegfarendur fara óáreitta leiðar sinnar. Næsta sunnudag sá hann Fiamettu við messu í dómkirkjunni og notaði tækifæi'ið til að rétta henni slæðuna, um leið og hú11 gekk úr kirkju. Síðar um daginn gerðist hann svo djarfur að knýja að dyrum a heimili hennar og kom þá ókunnug kona til dyra, Fortunata að nafni. Hún kvaðst vera aðkomandi í bænum eins og hann. Féll vel á með þeim. Síðar auðnaðist honum einni^ að kynnast Fiamettu nánar. Fortunata var frá Korsíku og hafði flúið til Sardiníu undan yfirgangi Frakka, seö1 héldu föðurlandi hennar í fjötrum. Hún kvaðst hafa staðið í sambandi við flokk manna á Sikiley, sem hefðu ætlað að frelsa ættjörð hennar. Foringi þeirra var hin11 göfugi Nicanor prins. „Er hann enn á lífi ?“ spurði Rinaldo- „Ég veit það ekki,“ svaraði hún. Mjö£ þekktur maður átti að stjórna leiðangD11' um til Korsíku ...“ „Hvað hét hann.“ „Það var Rinaldini. — Hann er dáin11, Allur flokkurinn í upplausn og leyndarxnúl' ið upplýst. Mér auðnaðist að flýja og koifl' ast hingað.“ „Þekkir þú ekki Nikanor prins?“ „Ég á mynd af honum, en ég sá ha1111 aldrei.“ 158 HEIMILISBLAÐ10

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.