Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1962, Page 32

Heimilisblaðið - 01.07.1962, Page 32
Oriane hrópaði: „Hamingjan góða! Ég hefði þvegið og nuddað mér í tuttugu ár, ef ég hefði ratað í þá ógæfu, að ræningi hefði kysst á hönd mína.“ „Sagt er, að hann sé fagur álitum,“ sagði ein kvennanna. „Hvernig getur ræningjaforingi verið fagur álitum?“ spurði Oriane. „En komið nú með yðar sögu, Marliani greifi. Ég skil ekki, hvernig á því stendur, að menn eru svo fúsir að hlusta á sögur af þessum vonda Rinaldini.,.“ „Svo er sagt í Neapel, að einu sinni væri Rinaldini í kirkju í Messina, eða hvar það nú annars var. Hann kraup á bak við konu, sem bar svarta slæðu og baðst fyrir af miklum ákafa og upphátt, en hafði gleymt því, að hún var ekki ein. Rinaldini heyrði, að hún bað Guð almáttugan um hjálp, ör- yggi og vernd í fyrirhuguðu ferðalagi. Sér- staklega bað hún um vernd gegn óaldar- flokkum Rinaldinis, sem þá óðu alls staðar uppi, og allir ferðamenn voru hræddir við. Hann hvíslaði þá í eyra hennar: „Þér getið nú fengið þessa vernd með auðveldara móti.“ Þegar hún sneri sér við, fékk hann henni vegabréf, sem hann var vanur að gefa ferðamönnum, svo að þeir yrðu ekki rændir af mönnum hans, stóð því næst upp og fór út úr kirkjunni." „Eitt göfugmennskubragðið til!“ sagði sú frænkan, sem fyrri söguna hafði sagt. „En þetta er samt ekki sagan, sem þér ætluðuð að segja áðan,“ mælti Oriane. „Hún er ekki nærri því eins góð og þær tvær, sem þið nú hafið heyrt.“ „Þótt hún sé það ekki, þá er hún um þá persónu, sem við gjarnan viljum heyra meira um.“ „Ég skal segja ykkur hana við kvöld- verðinn.“ Konurnar heimtuðu nú að fá kvöldverð- inn strax á eftir, og Oriane gekk svo á eftir því að hann stæði við loforð sitt, Rinaldo leit í kringum sig og hóf sögu sína: „Einu sinni sat Rinaldini í veizlu á ver- önd einni ásamt fjórum konum. Þær vissu ekki hver hann var, og skemmtu sér í fé- lagsskap hans eins og hann væri einn úr þeirra eigin stétt. Hann var mjög kurteis og riddaralegur, stundum dálítið annars hugar, en það skrifuðu menn á reikning konunnar, sem sat við hlið hans. „Hann er ræningi,“ sagði þessi fallegi sessunautui' hans. „Rétt segir þú!“ sagði Rinaldini og kyssti hana. Hann kyssti Oriane. Hún sneri sér undan og hrópaði skelfd: „Engin gamanmál!“ „Þetta er alvara,“ sagði Rinaldo. „Alvara?“ hrópuðu frænkurnar. „Alvara?“ hrópaði markgreifinn, um leið og hann stökk á fætur. Rinaldo var hinn rólegasti, benti þeim að setjast aftur og sagði: „Ég er Rinald- ini.“ Síðan sneri hann sér að Oriane. „Fyrir- gefið mér! Með mynd yðar í hjartanu og koss yðar á vörunum held ég nú aftur til míns einmanalega staðar. Þar brosir engh1 Oriane við mér.“ Hann stökk á fætur og sagði við mark- greifann: „Ég veit, að ég er yður skuld- bundinn fyrir gistivináttu yðar. Ég get ekki endurgoldið hana, því að enginn gest- ur kemur í hellinn til mín. Þar er ég ávalk einn, umsetinn af óróleika, ótta og áhyggj' um. Þó bið ég yður að þiggja hest minn að gjöf, sem minningarvott um veru mína hér.“ Rinaldo gekk til dyra, en markgreifim1 sagði: „Ég get ekki látið yður fara einan og án fylgdar.“ „Fyrir því er séð.“ Hann gaf merki, og Jordano gekk fram með tíu vopnaða menn. Markgreifinn hneig niður í stól sinn. Þjónarnir þyrptust sam- an. Oriane hélt báðum höndum fyrir aug' um og kveinaði hástöfum. Frænkurnai' veinuðu og skulfu. „Vertu sæl! Oriane!“ hrópaði Rinaldo- Svo fór hann burt úr garðinum með meM1 sína. Rinaldo iðraðist mjög hinnar ónærgætm islegu framkomu sinnar og skrifaði OriaOe bréf, þar sem hann bað hana fyrirgefning' ar, en hann fékk aldrei neitt svar. Skömmu síðar fóru konurnar úr höh markgreifans, og sjálfur fylgdist hann me^ þeim til borgarinnar. Oriane fór til frænd' konu sinnar, sem var abbadís í klausti'1 Klörusystra í Sesto. Dag einn heilsaði henni pílagrímur og HEIMILISBLAÐl® 104

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.