Heimilisblaðið - 01.12.1964, Page 51
H.f. Ölgerðin
Egili
Skalliigríin^ion
Reykjavík
Sími: 1-13-90
Símnefni: „Mjöður"
Hannes Pétursson:
STEINGRÍMUR THORSTEINSSON
I-Iannes Pétursson er þegar landskunnur af Ijóðum sínum, en hér
hefur hann ritað ýtarlega ævisögu Steingríms skálds Thorsteins-
sonar, þar sem fjallað er um æskuslóðir Steingríms, uppvöxt hans
og ætt, skólagöngu, æskuverk, dvöl hans í Kaupmannahöfn og ljóða-
gerð á þeim árum, ævi Steingríms eftir heimkomuna til Reykja-
víkur og bókmenntastórf hans þá og viðhorf hans til stjórnmála
og skáldskapar, þar á meðal raunsæisstefnunnar og menningarlegra
deilumála þeirra tima. í bókinni er vitnað til fjölmargra óprentaðra
bréfa, og segir þar rnargt frá skoðunum Steinsgríms og málefnum.
Bók Hannesar er fyrsta könnun á ævistarfi þessa merka skálds, sem
naut á sínum tima frábærra vinsælda alþýðu manna og vandlátra
bókmenntaunnenda. Mun hún vafalaust vekja ærna athygli og þykja
góðum tíðindum sæta.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs