Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1972, Qupperneq 6

Heimilisblaðið - 01.11.1972, Qupperneq 6
taka í kaþólsku kirkjuna. Þrem dögum síðar, 1. desember 1956, lézt hann. En ég fann ekki til neinnar sorgar. Hvernig gat ég fundið fyrir sorg, þegar ég minntist þess sem gerzt hafði þetta undursamlega ár sem senn var á enda? Pierre hafði fundið það sem hann hafði leitað að — það var kraftaverkið sem gerzt hafði í Lourdes í hans tilfelli. Skömu áður en ég yfirgaf Frakkland, frétti ég að Pierre hafði verið bænheyrður hvað John snerti. Pilturinn hafði farið burt frá Lourdes með öll einkenni þess, að krabbin væri læknaður og mjöðmin og fóturinn á fullkomn- um batavegi. Þegar heim til Kaliforníu kom, hélt síðasta óuppfyllta ósk Pierres þó áfram að hrjá mig: Hann hafði lofað nunnunum í Lourdes 1000 teppum, og mér fannst það loforð hvíla á mér á þann veg, að ég hvorki gat uppfyllt það né hlaupist frá því. En vinir mínir í Los Angeles komu mér til hjálpar. Sett var á laggimar nefnd sem útvegaði það nauðsynlegasta, og Pepperells-klæðaverksmiðjan í Massachusetts hét mér því að selja mér teppin á fram- leiðslukostnaði. Svo er fyrir að þakka flugfélögunum Trans World Airlines og Air France og frönskum bílstjóra Roger Bourlé að nafni, að teppin komust til Lourdes að kvöldi 19. desember 1957. Það var í úrhellis rigningu, en háæru- verðugur biskupinn, allir prestarnir og jafn- vel Baska-smalar ofan úr fjöllum voru mættir til að bjóða mig velkomna. Nunnur sjúkra- hússins voru orðlausar af hrifningu. Gat það verið satt, að ég væri komin með 1000 teppi? spurði þær. Þau hlutu að vera 100 — það gat ekki verið að þau væru 1000? En í ljós kom, að teppin voru nákvæmlega talið: 1009 — Pepperells-verksmiðjurnar höfðu gert sitt til þess, að bikar gleðinnar var meira en barma- fullur. Loforð Pierres hafði verið haldið. Þegar ég minntist hans á staðnum, í kærleika og djúpri trú, eins og andrúmsloftið var nú mettað af, þá endurómaði í hjarta mínu það kraftaverk sem hann hafði orðið fyrir í Loudres. Og ég fann fyrir auknum styrk og trausti í vissunni um það, að sorgin myndi aldrei ná að þrengja að hjarta mínu eða vinna sér þar bústað. 202 HEIMILISBLAÐI®

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.