Heimilisblaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 31
Við„ sem vinnum eldhússtörfin
Bráðum koma blessuð jólin,
börnin fara að hlakka til . ...
Og venjulega fer það svo að börnunum tekst
að smita okkur og áður en við vitum af er
jólaundurbúningurinn kominn í fullan gang.
Bezt er að byrja á að athuga jólaskrautið
og nota svo einn eða tvo sunnudaga fyrir jól
til að bæta við það sem fyrir er. Þá getur líka
öll fjölskyldan hjálpast að.
Svo er það jólabaksturinn. Hér eru nokkrar
mjög góðar smákökuppskriftir, sem gæti ver-
ið gaman að reyna.
Kókoskransar
125 gr smjörlíki
125 gr strásykur
1 eggjarauða
125 gr hveiti
125 gr kókosmjöl
Hnoðið öllum efnum saman og búið til
kransa — annað hvort með því að setja deigið
í sprautupoka eða láta það í gegnum hakkavél
með kökuskífu á. Bakist við góðan hita, ca.
200°, í ca. 10 mín.
Haframakkarónur með hnetum og súkkuiaði
200 gr smjör
200 gr sykur
200 gr hveiti
200 gr hafragjórn
2 egg
1 tsk hjartasalt
% tsk möndlu(essens) dropar
50—100 gr saxaðir hnetukjarnar
50—100 gr raspað súkkulaði
Hálfbræðið smjörið og hrærið því vel saman
við sykurinn, bætið hinu út í og hnoðið deigið
og látið litlar kökur á vel smurða plötu og
hafið langt á milli. Bakist við jafnan hita,
ca. 160—175°, í um það bil 15 mín.
Döðlumakkarónur
2 eggjahvítur
125 gr sykur
Vá kg steinlausar saxaðar döðlur
% kg afhýddar mjög fint saxaðar
möndlur
Eggjahvíturnar þeytast mjög stífar, sykr-
inum er hrært út í og síðan döðlum og möndl-
um. Látið á smurða plötu í toppa og bakast
við jafnan hita, ca. 175°, í 12—14 mín., þangað
til þær eru orðnar ljósbrúnar.
Hér eru svo nokkrar tertur, sem geymast
vel:
Sólskinskaka með karamelluglassúr
120 gr smjörliki
150 gr sykur
2 egg
75 gr hveiti
% tsk lyftiduft
sultað appelsínuhýði
Eggin og sykurinn þeytast saman, út í það
er bætt bræddu, en köldu, smjöri. Síðan er
hveiti, lyftidufti og appelsínuhýði bætt út í.
Hellið deiginu í vel smurt, raspstráð hring-
form og bakið við meðalhita, 175°, í 30 mín.
Þegar kakan er orðin því sem næst köld,
smyrjið þá karamellukremi yfir, og það er
búið til úr:
2 dl rjómi
125 gr sykur (flórsykur)
2 msk sýróp
1 msk smjör
1 stór tsk vanillusykur
Blandið rjóma, sykri og sýrópi í þykkbotn-
aðan pott og sjóðið þessa blöndu þangað til
hún er orðin nokkuð þykk, í ca. 15 mín. Látið
þá smjör og vanillusykur út í og smyrjið svo
kreminu yfir kökuna. Kremið verður alveg
stíft þegar það kólnar og heldur kökunni sem
nýrri í langan tíma.
Heimilisblaðið
227