Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 19

Heimilisblaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 19
stúlkur, og vonaði að það gæti m.a. hjálpað manni sínum til að standast hin miklu útgjöld, og orðið til að greiða hluta gamalla skulda. Nafnið Agassiz laðaði nemendurna að, miklu fleiri en rúm var fyrir, og í þeim greinum sem Agassiz hafði ekki áhuga á sjálfur, aðstoðaði Alexander sonur hans við kennsluna, en hann var ungur og gjörvilegur maður og ekki eldri en margir nemendanna. Og það leið ekki á löngu, þar til Agassiz var skuldlaus maður í fyrsta sinni í lífi sínu. Næstu ár voru annríkistími við ferðalög og ritstörf. Agassiz móttók margs konar heið- ursviðurkenningar og eignaðist fjölda vina meðal vísindamanna og rithöfunda. Óska- draumur hans var að koma upp náttúruvís- indasafni. Hann fékk Harvardháskóla til að leggja til grunninn, en f jármagn barst honum bæði frá einstaklingum og hinu opinbera. Agas- siz talaði máli sínu sjálfur, og embættismað- ur nokkur sagði eitt sinn við hann: ,,Ég hefi ekkert vit á söfnum, en ég get ekki horft aðgerðarlaus á svo hugdjarfan mann berjast án hjálpar." Þannig varð stofnun sú til, sem enn ber nafnið „Agassizsafnið". Þar hafa margir. frægir vísindamenn hlotið hluta af þekkingu sinni, og þeir sem stunduðu nám þar, gleymdu því aldrei hvað hinn ákafi og vitri kennari þeirra fylgdist vel með þeim og uppörvaði þá. Ein af mörgum hugmyndum hans var sum- amámskeið fyrir náttúruvísindamenn. „Fyrst maður aðeins lærir um náttúruna af bókum þekkir maður hana ekki i innsta eðli sínu,“ sagði hann. Og honum heppnaðist að koma á fót námskeiði á Penikese-eyjunni í flóa einum við Atlantshafið. Fyrsti starfstíminn þar hófst með stuttri bæn, og aldrei hafði gamli kennarinn verið glaðari né hamingjusamari. Kennsla hans var nú meir en nokkru sinni áður fyllt hinni miklu virðingu sem hann hafði ætíð borið fyrir nátt- úrunni. ,,í hvert skipti, sem við erum að lenda á villigötum, beinir náttúran leið okkar aftur til hins fullkomna sannleika," sagði hann. En ekki leið á löngu, unz hann sjálfur hvarf í skaut sinnar elskuðu náttúru. Hann dó árið 1873, og á gröf hans í Cambridge, nálægt Harvardháskóla, stendur granítvarði, sem var sóttur til Aarskriðjökulsins, þar sem hann hafði í æsku sinni fóstrað þær hugmyndir, sem stöðugt blómstra og skjóta nýjum rótum. Nemendur Agassiz, þeirra nemendur, og fjöldi viðurkenndra vísindamanna um heim allan, eru í dag sannfærðir um að hinar miklu isbreiður norðursins skriðu fram og drógust til baka á óralöngu tímabili, sem landfræð- ingar kalla ísöld. Sem stúdent dvaldi ég í Agassizsafninu, og hlýddi á hinn fræga ísaldarfræðing, dr. Regin- ald Daly, segja frá því að enn væri þekking okkar á ísöldinni ekki komin nema hálfa leið. Menn gera ráð fyrir að slíkt tímabil geti komið aftur, því langt í norðri eru óendanlegir ísflákar, og hiti sólarinnar getur enn dvínað. En við mennirnir þurfum ekki að óttast að við lifum slíkt ekki af. Þótt manneskjan hafi myndast á jörðunni milli tveggja ísaldartíma- bila, og þótt forfeður okkar hefðu fátt af hjálpartækjum, björguðust þeir gegn um langa og kalda ísvetra, sem lögðust yfir jörðina. Louis Agassiz grunaði alls ekki sumt af því, sem við nú vitum, eða gizkum á. En ekkert af því mundi koma honum á óvart, því að þekking hans á jörðunni var yfirgripsmikil, og hann leit á þá þekkingu sem hluta af hinum mikla háskóla lífsins. SKRÝTLUR Marta: Sko, litla drenginn minn! Allir segja að hann sé lifandi eftirmyndin mín. Bína: Vertu ekki hugsjúk út af því, barnið breytist með aldrinum. Hún: Næsta vor höldum við silfurbrúðkaup okkar. Hann Við skulum fresta því um fimm ár og höldum þá minningardag þjátíu árs stríðs- ins. heimilisblaðið 215

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.