Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 12

Heimilisblaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 12
ið vinnu að kvöldinu. Frá klukkan sex til til tólf. Fimmtán dalir á viku. Vélin kostar nítján dali og níutíu og átta sent. Þú færð dal fyrir hverja vél sem þú selur.“ Tomma fannst sér meira misboðið en nokkru tali tæki. En hann hraðaði sér heim og heilsaði Sally með hrífandi brosi, þegar hún hljóp til móts við hann. „Heyrðu mig, þú mátt ekki verða reið, elsk- an, ég hef fengið smávegis að gera.“ „Er það satt, Tommi? Hvað er það?“ „Ég verð afgreiðslumaður við stórt sport- vöruhús," svaraði hann. „Fína verzlun! Elsk- an mín, við erum á grænni grein. Héðan í frá gat almenningur sem átti leið um Sjöttu götu notið þess að sjá ekta Beau- fort-niðja í baðfötum sýna vöðvastyrkleika sinn við róðrarvél í útstillingarglugga sport- vöruverzlunar af lægsta klassa. Þegar rindils- legir sveinstaular gengu inn í verzlunina, hrifnir af vöðvum Tomma í glugganum, vék hann sér að þeim og sór og sárt við lagði, að hann hefði verið alveg eins og þeir, áður en hann hefði tekið til við að þjálfa sig í hinni einstæðu róðrar-þjálfunarvél Pinks. Og annaðhvort smjaðraði hann fyrir þeim eða ögraði þeim, þangað til þeir ákváðu að kaupa þannig töfravél. En hann fyrirleit þetta starf. Og vélina sjálfa hataði hann af öllu hjarta; hún var í augum hans táknið um niðurlægingu hans og smán. En fjárupphæðin sem hann lagði til hliðar svo hann gæti keypt jólagjöf handa Sally sinni, hún jókst dag frá degi, þótt hægt gengi. Á aðfangadagskvöldi kom hann snemma heim til þess að vitja peninganna. En þá voru þeir ekki í skúffunni. Og Sally var ekki heima heldur. Löng stund leið þangað til hún kom — með risastóran pakka í fanginu. „Þú mátt ekki sjá petta,“ sagði hún og setti pakkann mn í skáp. „Heyrðu mig, Sally,“ sagði hann ákveð- inn. „Hvað hefurðu gert? Hvar eru pening- amir?“ „Æ, Tommi," sagði hún, ,,þú mátt ekki verða reiður. Ég gat ekki stillt mig. Mér fannst bara að þú ættir skilið að fá almennilega jólagjöf.“ Það var ekki annað að gera úr því sem kom- ið var en að kyssa hana, og það gerði hann líka. Hún hafði keypt lítið jólatré með til- heyrandi glingri, sem hún nú náði í; °S Tommi kom með nýja sparigrís í staðinn fyrir Dick, sem rotaður var. Það var allt og sumt sem hann gat gefið henni. Þá kom Sally með það sem hún hafði keypt handa honum. Tommi þreif umbúð- irnar utan af pakkanum stóra. Þá var það sem kökkur kom í hálsinn á honum og hann lét fallast í stól. Gjöfin var hin einstæða róðrar- þjálfunarvél Pinks! — Sally virti hann fyrir sér hugsi. „Ó, Tommi!“ hrópaði hún. „Ég held þú haf- ir orðið fyrir vonbrigðum, svei mér þá!“ „Ástin mín,“ svaraði hann. „Ég er svo yfir mig hrifinn, að ég má vart mæla. Það var ein- mitt svona áhald sem mig hafði dreymt um!“ Þá hringdi dyrabjallan. Það var hraðskeyti. Komið var með stóran pakka. Þau störðu á hann bæði tvö. „Þetta er til þín, Tommi,“ sagði Sally- „Hvað í ósköpunum getur það nú verið? Hvaðan er þetta sent?“ Tommi leysti utan af pakkanum í snar- hasti. Það var þjálfunarvél Pinks! „Þetta hlýtur að hafa farið í skakkan stað,“ sagði Sally. „En hvað er þama? Það fylgir bréf í pakkanum!“ Þarna lá óneitanlega umslag, og í umslag- inu var bréf, sem hljóðaði þannig: Kæri Tom! Fyrir alla muni leggðu stund á líkams- þjálfun heima hjá þér. Ég sá þig í glugg- anum. Það er enginn staður fyrir Beaufort. En þú hefur bein í nefinu, drengur minn. Það hefurðu sannað. Komdu heim, og við skul- um spjalla saman. Kannski ætti maður held- ur að senda þig til Parísar, svo þú getir orðið sannur listamaður og með tímann stillt út myndum í stað þess að stilla út sjálfum þér. Hér er smávegis handa ykkur Sally. Gleðileg jól! Faðir þinn, Tómas Beaufort, senjor. Innan í bréfinu lá þúsund-dala-seðill. Sally hrifsaði hann, en Tommi tók hann af henni aftur. „Nei, góða, nú skaltu ekki kaupa fleiri róðr- arvélar — við skulum labba út og leita að almennilegri gjöf handa þér, og svo skulum við halda jólin eins og vera ber ...“ 208 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.