Heimilisblaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 7
Meistarinn er hér
og vill finna pig
Les Jóh. 11, 20 - 44.
Skuggalegt er skammdegið, lágt og skammt
gengur ljóshnötturinn fagri á sinni himin-
braut.. Nætur eru langar dimmar. En milli
skammdegisskuggana skín birtan guðdómlega
og röddin hljómar: „Óttist ekki. Eg flyt yður
tnikinn fögnuð. Yður er frelsari fæddur.“ Og
það er bent á lítið barn í gripastalli. Fátæk
hjón á ferð í ókunnri borg fá hvergi gistingu
fyrr en í gripahúsi, þar sem hin unga, ör-
þreytta kona fæðir frumburð sinn. Ekki er
myndin glæsileg. — En þó — aldrei sást neitt
fegra en saklaust bamið við móðurskaut, og
aldrei er maður Guði nær en í návist ungbarns-
ins.
En hér er þó um meira að ræða. Hér eru að
rætast margra alda spádómur og margra kyn-
slóða vonir. Hér er sá í reifum sem síðar gat
sagt: „Eg er ljós heimsins." „Vegurinn til
himins.“, og „Enginn kemur til föðurins nema
fyrir mig.“ Hér er hann, sem var og verður
Meistarinn allra tíða og tíma, hann, sem hafði
°g kenndi orð eilífs lífs. Og hér er ég kominn
að því orði sem hvað eftir annað hefur knúð
h huga minn þegar mig fór að langa til að
senda jólavkeðju til góðvina. „Meistarinn er
hér og vill finna þig“ Það var djúp og sár
sorgin í húsinu .systur hörmuðu sinn einka-
hóðrur, sem var látinn. Marta heyrði að Hann
væri á leiðinni og gekk á móti honum, og hún
fékk huggunarorðið: „Eg er upprisan og lífið.
Hver sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.
Trúir þú þessu?“ Já, hún fór til systur sinnar
og sagði einslega við hana: „Meistarinn er hér
og vill finna þig.“ Og María hljóp til Hans og
fær sama huggunarorðið, og orðinu fylgdi
hjálpin, máttarverkið mikla, bróðirinn látni
lifnar á ný, svo öflugt var orðið, lífsins orð.
Og enn í dag er þetta sama lífsins máttuga
orð lífgefandi, ef meðtekið er í trú.
„Meistarinn er hér og vill finna þig.“ Oft
berast þessi orð að eyrum, erindið er á ýmsa
lund, en alltaf gott.
Hvenær og hvar sem kirkjuklukkan hljóm-
ar segir hún þetta. Hvenær sem við opnum
Bókina, hvíslar hún því sama, þegar nálgast
hátíðarstund og gleðin vekur bros á brá, er
gleðiefnið mesta, að „Meistarinn er þar og vill
finna þig.“ Þegar sorg, sjúkdómar eða ógnir
dauðans særa huga og sál, mælir Guðs andi
hlýtt og hljótt: Meistarinn er hér — huggar-
inn, læknirinn, frelsarinn, vill koma til þín.
Nú er það mín jólaósk og jólabæn, að þú,
vinur kær, hver sem þú ert, heyrir og gefir
gaum að þessum boðum og fáir að heyra lífs-
ins sanna orð, að bamið í jötunni er Meistar-
inn sem vill finna þig, frelsarinn, sem vill gefa
þér sanna gleði, fylling vona, líf og sælu að
eilífu. Trú þú þessu í Jesú nafni.
Þessa kveðju bið ég Heimiiisblaðið að færa
lesendum sínum með þökk og blessunarósk
aldins vinar.
Einar Sigurfinnsson, Hveragerði.
HEIMILISBLAÐIÐ
203