Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1972, Qupperneq 10

Heimilisblaðið - 01.11.1972, Qupperneq 10
í bláa Roadster-bíLnum sínum. Hann rétti mér höndina og hjálpaði mér upp í bílinn. Þegar við skömmu síðar sátum yfir smáglasi á gang- stéttarveitingahúsi við Champs-Elysées, sagði hann allt í einu: „Segið mér nú alveg í ein- lægni, hvað finnst yður um hana Solange? Ég bið yður að segja alveg meiningu yðar, rétt eins og við værum gamlir vinir.“ Satt að segja skildi ég það ekki, hvers vegna við ættum að vera að eyða dýrmætum tíma okkar í það að ræða um þá ómerkilegu kvensnift, svo ég svaraði dálítið afundin: „Hví spyrjið þér?“ „Kæra Colette ég er svo vissum þagmælsku yðar og vináttu í minn garð — að ég hika ekki við að trúa yður fyrir því, að ég elska hana og að ætlun mín er að kvænast henni.“ Allt snérist í hring í kringum mig, og það var eins og umhverfið yrði skyndilega grátt þótt vorið lægi í loftinu. Svitinn brauzt fram á enni mér, og hendur mínar urðu nístings- kaldar. En Henri tók víst ekki eftir neinu, því hann hélt áfram: „Ég spyr yður vegna þess að þér hafið auðsýnt mér svo mikla vináttu, og vegna þess að þér eruð vinstúlka Solange. Ég veit, að þér viljið henni vel. Er Solange í tygjum við nokkurn annan? Og haldið þér ekki, að henni þyki ekki dálítið vænt um mig?“ Meðan hann sagði þetta, hafði ég endur- heimt andlegt jafnvægi mitt. „Vinur minn,“ sagði ég blátt áfram. „Ég er alls ekki fær um að veita ráðleggingar í svona máli. Ég get aðeins svarað spurningu yðar þannig: Ef kona segist elska yður, þá megið þér trúa orðum hennar. En hvort hún í rauninni gerir það, verður tíminn einn að leiða í ljós.“ Ég stóð upp og kvaddi þennan „vin“, sem ég hafði misgripið mig svo illilega á. Gáfur hans voru víst ekki eins afburða miklar og ég hafði fyrst haldið, og því síður dómgreind hans. Ef hann vildi láta gabba sig ... þá gott og vel ... það hlaut að vera hans einkamál. Allavega kom það ekki mál við mig. Þegar ég kom heim sagði ég mömmu, að hún skyldi ekki endurnýja aðgangskort mitt á tennisleikvanginn ... það fylgir engin gæfa tennisleik. Allraunamaður óskasl Smásaga eftir Richard Connell Hin unga frú Beaufort tók Dick, lyfti hamr- inum og sló hann í enið. Dick sálaðist á stað og stund. Síðan taldi hún peningana með fýlu- og áhyggjusvip. Þetta voru auvirðilegir smá- peningar, ófægðir, nánast ryðgaðir af því að hafa legið jafn lengi í postulínsvömb spari- grísarins. Frúin taldi þá hvað eftir annað. Þetta voru þrír dalir sextíu og þrjú sent. Henni tókst ekki að fá hærri upphæð, hvað oft sem hún taldi. Þá komu mjólkurpósturinn og síðan ískarl- inn, og Beauforts-f jármunirnir skruppu saman í einn dal og áttatíu og tvö sent. Hin unga frú Beaufort stillti sig um að tárast og safnaði saman brotunum af Dick. Hinar brúðargjafimar voru allar komnar til veðlánarans. Jafnvel yfirfrakki Tómasar og giftingarhringurinn hennar. Því að Tommi var búinn að vera atvinnulaus mánuðum sam- an. Eftir þrjár vikur voru jól. Fyrstu jólin þeirra í hjónabandinu. Hún var að gráti komin, en hún stillti sig. Þess í stað púðraði hún á sér söðulnefið, setti fleskbita á pönnu yfir prímus- inn í baðherberginu og bað til guð um að bras- fýlan næði ekki þeffærum þeirrar, sem átti húsið. Því það var stranglega bannað að stunda matseld inni í herbergjunum, og ef meður átti erfitt með að greiða húsaleiguna á réttum tíma, varð maður að fara að öllu með gát. Á þeirri stund sem frú Beaufort var að steikja fleskið, var Tómas maður hennar á leið upp Sjöttu götu og brauzt áfram gegn um myrkur og hríð. Hann var búinn að vera á þönum daglangt í öllum kuldanum og haft tal af að minnsta kosti sextán manns, forstjórum 206 HEIMILISBLAÐI®

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.