Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1972, Qupperneq 26

Heimilisblaðið - 01.11.1972, Qupperneq 26
hún upp angistarstunu. Hann sleppti henni samstundis. „Finnst þér ég vera óaðlaðandi," spurði hann varfærnislega. „Nei, nei — það er ekki það. Mér — mér fellur illa að vera kysst. Hann leit undrandi á hana. „En — en þú ert svo blátt áfram og eðlileg." „Það er ég líka.“ Hann hallaði sér aftur á bak út í hornið, og stundi. „Ég botna bókstaflega ekkert í þér, Natalie. Stundum ert þú elskuleg við mig, en á næsta augnabliki ertu fráhverf mér. Þú ert undar- leg. Stundum þegar ég hefi þig í örmum mín- um, ertu svo fjarhuga. Ef til vill er það vegna þess, að ég er of nærri þér, að þú virðist svo fjarri mér. Þú segir að ég virki ekki óþægi- lega á þig, en ég finn að það er kvalræði fyrir þig að kyssa mig. Þetta er nú ekki sérlega uppörvandi. Geðjast þér ekki að mér?“ „Jú, mér geðjast mjög vel að þér, Larry. Og mér fellur mjög vel við þig, — sem vin.“ „En það er þá einhver annar?“ „Ja — nei.“ Svo endurtók hún hærra, eins og í vonleysi. „Nei.“ „Er það satt?“ Hún snéri sér frá honum, og horfði út um gluggann, á tunglskinið, sem lýsti upp gang- stéttina. „Já, það er satt, Larry. Það er ekki — það getur ekki orðið neinn annar.“ „Þá er ekki ástæða til þess að ég missi kjarkinn. Ég mun halda áfram að vera nær- gætinn og elskulegur við þig, þangað til að þú finnur með sjálfri þér, að þér geðjast að því.“ Hann tók hönd hennar, og þrýsti hana. „Held- ur þú, að þú hafir nokkuð á móti því?“ „Ég veit það ekki,“ hvíslaði hún, þótt hún mundi aldrei þola það, — aldrei — vegna Bobs. Hún gat ekki þolað arma nokkurs ann- ars manns utan um sig, og einskis manns varir annars, við sínar, Hún vissi, að þetta var heimskulegt. Hreint brjálæði. Hún hafði sagt það við sjálfa sig, hundrað sinnum áður. Það var þess vegna, sem hún þröngvaði sig til að þiggja boð Larrys, að skemmta sér. Henni geðjaðist vel að honum — betur en nokkrum öðrum, sem hún hafði kynnzt, að Bob undanskyldum. Ef til vill kemur að því, að mér fellur Larry enn betur, og þá tekst mér ef til vill að yfir- vinna tilfinningar mínar til Bobs — en þó aldrei að fullu og öllu. En á sama augnabliki og hún fyndi faðm- lög Larrys, og kossa hans, yrði henni ljóst, að hún gæti aldrei gleymt Bob, vegna annars. Það var niðurlægjandi og óhugsandi. Og það er alltaf auðmýkjandi, að finna sönnun þess, hversu lítið vald maður hefur yfir sínum eigin tilfinningum. Hann krosslagði handleggina, og andvarp- aði. „Þú ert furðuleg stúlka, Natalie. Og sjálf- ur skil ég ekki, hvers vegna ég get ekki hætt að hugsa um þig. Sennilega vegna þess, að þú ert mér ráðgáta. Þú ert svo gjörólík öllum öðrum konum, sem ég hef kynnzt." „Vegna þess, að ég vil ekki leyfa þér að kyssa mig?“ „Ekki aðeins það. Flestar konur láta að minnsta kosti svo að þeim þyki gott að láta kyssa sig, jafnvel þótt þeim finnist það ef til vill ekki. En þú ert aftur á móti hreinskilin og ekki með neinn leikaraskap. Ég hefi það á tilfinningunni, að allar þær konur, sem ég hefi komizt í kynni við beri á sér grímu, og svo hitti ég eina af tilviljun, sem er grímu- laus. Þetta vekur undarlegar tilfinningar —• einskonar aðvörunarkennd. Hefur þú kynnzt mörgum hliðum lífsins, Natalie? Þú ert hjúkrunarkona. Þú hefur séð fyrir þér vissan hluta af lífinu, í gegnum starf þitt.“ „Það er alveg rétt. Sérstaklega ef þú mein- ar skurðaðgerðir og sjúkdóma, reglur og ör- væntingu." „En það eru til aðrar hliðar á lífinu. Hefur þú aldrei kynnzt þeim. Hefur þú aldrei kynnzt hamingju og vináttu?" Hann þagnaði um stund, en sagði svo blíð- lega: „Hefur þú aldrei notið ástarinnar?“ Það var eins og henni brigði. „Viltu vera svo vænn, að spyrja mig ekki um þá hluti,“ svaraði hún hljómlausri röddu. Hann þagði. Hann hafði búist við ákveðnu neii, eða brosandi viðurkenningu. Flestar kon- ur brosa leyndardómsfullu brosi, þegar þær eru spurðar um ástina. Margar segja að þótt fjöldi manna hafi verið ástfangnir af þeim, 222 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.