Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1973, Síða 8

Heimilisblaðið - 01.03.1973, Síða 8
rétt eins og í Casablanca gerði sólin sitt til að gefa þeim glæsilegustu hugmyndir um stað- inn í heild. Af tveim lélegum hótelum völdu þær það sem ódýrara var, og að loknurn knöppum og ódýrum málsverði fóru þær út í bæinn til að skoða sig um og fá tímann til að líða þang- að til þær gætu gengið á fund bæjarstjórans. Þær gengu út með strandveginum þar sem stóðii fjölmörg fögur einbýlishús í stórum glæs., irðum, og þær böfðu ofan af fyrir sér með því að geta sér til um hvert þessara húsa væri Palais de Menara, sem sagt þeirra eigin höll. Á leiðinni til bæjarstjóraskrifstofunnar fór reyndar svo fyrir þeirn, að þær villtust inn í eitt Arabahverfið, og þar sem þær af ótta við ókunnuga vísuðu frá sér allri leiðsögu, leið drjúg stund áður en þær komust í áfangastað. „Bara að við getum nú hafl upp á honum?“ livíslaði önnur, þegar þær voru komnar áleið- is að skrifstofunum. „Hvað ertu að þvæla . . . Maður eins og hann er auðvitað alþekktur . . .“ „Auguste Malcaret,“ endurtók skrifstofu- maðurinn, „ja, mér finnst ég kannast við nafnið. Hvenær segja frúrnar að hann liafi látizt? Fyrir tíu dögum? Æ, jú, nú veit ég! Þið eruð auðvitað systur lians, er það ekki? Bíðið andartak, ég skal láta bæjarstjórann vita um nærveru ykkar. Hann var einn af einkavinum bæjarstjórans.“ Bæjarstjórinn kom að vörmu spori. Þetta var lágvaxinn og sviplítill maður með grátt liár, sem líktist stormihröktum kornakri. Að baki nefnglyrnisins glitti í dökk og þunglynd- isleg augu. „Ó, heiðruðu frúr, hversu oft hef ég ekki heyrt liann minnast á ykkur. Hann hafði fjarska mikið dálæti á ykkur.“ Konurnar stundu til samþykkis, og eftir andartaks þögn sagði önnur þeirra liikandi: „Við erum komnar lil að vitja arfsins eftxr hann. Hvar er það sem höllin lians stendur? „Hö- hö- höllin hans?“ „Já, Palais de Menara. Og fjármunirnir hans, í hvaða banka eru þeir geymdir?“ Bæjarstjórinn hallaðist fram á skrifborðið og sagði í lágum rómi: „Hann bróðir yðar var draumóramaðxxr . . . og liann hafði mikið dálæti á ykkur háðum. Hann vildi sízt af öllu valda ykkur vonbrigðum. Einn daginn sagði hann við mig: „Ég hef skrifað systrum mín- um og sagt þeim, að mér gangi svo vel her syðra og að ég hafi keypt mér höll. Ég hef skrifað þeim xxm það, hversu fallegt sér her og auðæfin mikil. Ég vil svo sannarlega, að þær hafi engar áhyggjur af mér.“ Þið skiljið það víst vel, frúr mínar, að liann dreymdi um það sjálfan, hvemig þetta gæti hafa orðið 1 hans eigin lífi. En þetta var aðeins draumur og ævintýri, sem dó með honum sjálfum.“ Er þá . . . Er þá alls ekkerl Palais de Men- Q« arar „Því miður ekki . . . Hann átti ekkert slíkt. Ö, kæru frúr, þið megið trúa því, að ég finn til með ykkur . . .“ Sláturhús Parísarborgar hafa nú verið flutt úr miðborginni í nýtt hverfi skammt frá Orly. flugvelli. Myndin er af deild þeirri sem selur kjötafgang. Kannski öfunda einhverjir ungir strákar síma- og raf- magnsmenn af að klifra upp í staurana, en þeir eru þó á- reiðanlega ekki öfundsverðir af því í msijöfnum veðrum. 44 heimilisblaðið

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.