Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1973, Qupperneq 18

Heimilisblaðið - 01.03.1973, Qupperneq 18
— Það er fallegt af þér ,Luis. Ég mun ekki gleyma því. En enda þótt orð lians ættu að vera henni huggun, voru þau lienni einskis virði, eða næstum því einskis virði. Sólin var sigin í liafið eins og stór eldkúla, er þau komu til Monte Carlo. — Og hvað eigum við svo að taka til bragðs nú? spurði hann. — Við ökum beint að Hotel Fleuri c: at- hugurn, hvort þau séu þar, svaraði hún k. ,da- lega. Um leið og þau komu til hótelsins, gekk Marjorie að afgreiðsluborðinu og atliugaði í gestabókina. Natalie og Bob höfðu skrifað sig þar inn daginn áður. — Það er satt, lirópaði liún til Luis, blóð- rauð í andliti og með blikandi augu. Hann lagði hendina á liandlegg liennar og sá, að liún titraði af innibyrgðri reiði. — 1 öllum bænum, Marjorie, taktu þetta ekki svona al- varlega. Honum var lireinlega brugðið. Hún leit þannig tit, að hún gæti fundið upp á að gera hvað serii var. — Þú munt komast að raun um, hversu al- varlega ég tek þessu, er ég finn þau, fnæsti hún. Hún rauk frá lionum og þaut út á garðpall liótelsins. Þar sátu nokkrir gestir og dreyptu á víni ,meðan myrkrið seig yfir fjöllin í fjarska. Við borð í fjærsta endanum sátu Bob og Natalie. Þetta kvöld var hún fegurri en nokkrn sinni áður, í grænleitum kjólnum sín- um. Það var einhver angurværð í svip henn- ar, í brosti hennar og munnsvip, sem jók enn á fegurð hennar. Bob var dauðuppgefinn. 'Hann var með dökka bauga undir augunum og djúpar hrukkur á enninu og um fagurskapaðan munninn. — Þú ert þreyttur, Bob, sagði liún. — Þú ættir að fara að hátta. — Og fara á mis við þetta kvöld? Þótt ég væri þreyttasti maðurinn í heiminu, myndi ég ekki sleppa frá mér þessu kvöldi, Natalie! — Ó, elskan mín. Hann greip um báðar hendur liennar undir borðinu. — Við skulum liafa það dásamlegt. Sérðu stjörnurnar á himnin- um! Sjáðu mánann! Og sjáðu silfraðan sjó- inn. Hefur þú nokkum tíma séð fegurri sjón? Hún hristi höfuðið .— Nei, Bob. — Kvöldið okkar, Natalie, livíslaði hann og laut að henni. — Eina kvöldið, sem við tvö getum verið hamingjusöm saman. Við skuluni gleyma öllu nema okkur sjálfum. Hún sagði ekkert. Þjónninn kom með drykkina og setti þá á borðið. — Mig langar mjög til að kyssa þig, sagði hann lágt, — en ég skal lialda aftur af mér, Natalie. Það er mér nóg að vera hér með þér, geta liorft á þig og haldið í hönd þína. Ég mun muna hvert einasta augnablik þessa kvölds, nákvæmlega hvernig þú leizt út, hvernig þú brostir, hvernig raddblær þinn var. .. . Elskarðu mig, Natalie? — Bob Þú mátt ekki spyrja mig þessa. — Nei, ég skal ekki gera það, sagði hann með gleði í röddinni, en ég veit, að þú gerir það. Það er þess vegna, sem lífið er svo dá- samlegt í kvöld. Hann sperrti brýrnar og leit á hana. — Ertu hamingjusöm, elskan? — Já, Bob. Mjög hamingjusöm. Hún lét hrífast af þeirri stemmningu, sem hann var í. Það gagnaði ekkert að streitast á móti, og hún var hamingjusöm í kvöld. Það skipti engu máli, livað síðar kynni að verða. Framtíðin var líka eitthvað svo lítt mikilvæg. Alla vega hennar. Framtíð hans tillieyrði Marjo'rie . . • Einu sinni hafði henni fundizt, að hún hlyti að deyja, ef hún segði upp starfinu og sæi ekki Bob á hverjum degi. En nú vissi hún, að svo myndi ekki verða. Hún myndi lifa, lifa mörg ár, tóm, einmanaleg ár. En þau voru eitthvað svo óendanlega fjarlæg í kvöld. — Á kvöldi sem þessu getur hvað sem er gerzt, Natalie, hvíslaði hann. Hvorugt þeirra hafði lireyft glösin sín. Þau horfðu bara á hvort annað eins og bergnum- in. Hvorugt þeirra gaf gaum að smá hávaða og óró meðal gestanna, er lágvaxin, ljóshærð kona ruddi sér leið til þeirra milli borðanna. Er þau heyrðu ískalda röddina, sem satið af bræði, stífnuðu þau upp. — Ja-há, þama eruð þið þá, livæsti Marj- orie. — Hvað á þetta að merkja. Ég þaff raunar ekki að fá neitt svar við því. Andartak var Bob sem lamaður og koin ekki upp nokkm orði. Hann starði bara a liana. 54 HEIMILISBLAÐlP

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.