Heimilisblaðið - 01.03.1973, Page 14
í borginni Viserba á Italíu
gefur að líta eftirmyndir af
ýmsum frægum ítölskum
byggingum, þar á meðal
skakka turninum í Písa.
Franska skautamærin Patrick
Pera vann bronsverðlaunin á
Olympíuleikunum í Sapporo í
Japan, en er nú hætt að taka
þátt í keppni. Á myndinni er
hún að sýna skautastígvél og
tösku, sem hún hefur gert úr
ekta leðri.
Bandaríska kvikmyndaleik-
konan Jane Fonda var harður
andstæðingur Vietnamstríðs-
ins, og studdi Mc Govern í
baráttunni um forsetaembætt-
ið. Við sigur Nixons missti
hún alveg móðinn.
Ensk smáflugvél af Chip-
munkgerð nauðlenti nýlega á
svo litlum fleti að hún gat
ekki hafið sig til flugs, það
var því send þyrilvængja til
að flytja hana á næsta flug-
völl.
handan er til dæmis búgarSurinn hans Jarvis.
Ef maður keypti nú liann og sameinaði hann
þessu liér. Eftir tíu ár yrði Banner-Killan-
hrossaræktin þekkt víðs vegar og á öllum veð-
reiðunt. Þekkt og virt — þannig að menn ótt-
ist liana; annars gef ég ekkert fyrir það!
Heyrirðu livað ég er að segja?“
Killan kom ekki upp orði. En unga stúlk-
an gekk til Banners og leit í augu lians. „Er
þér alvara, Henry frændi?“ sagði hún.
„Auðvitað er mér alvara“, svaraði Henry
Banner. „Hross hafa sinn rétt. Við skulum
ekki ræða meira um það. Ef ég hef verið da-
lítið skammsýnn, þá er ég það ekki lengur1"-
Hann tók hvíta töflu upp úr vasanum og
ætlaði sér að gleypa hana; en þá var eins og
honum dytti eitthvað skyndilcga í liug. Hann
snéri sér við og rétti liana að Askoranda a
flötum lófa.
Áskorandi tók við henni, og fór síðan að
linusa utan í frakkavasann, þar sem Banner
geyrndi pillurnar.
Henry Banner hló við.
50
HEIMILISBLAÐIÐ