Heimilisblaðið - 01.03.1973, Síða 30
lionum en ekki liann, fannst honum. Hann
var þeirrar skoðunar, að hún vildi ekki ýfa
upp gömul sár. Ef til vill hafði hún líka
höndlað hamingjuna þarna vestur í Ivanada,
ef til vill hitt annan mann. Hann reyndi að
vona það, en átti mjög erfitt með það.
Tveim árum eftir lát Marjorie átti að lialda
læknaþing í Kanda. Margir læknar og skurð-
læknar höfðu tilkynnt þátttöku sína, en eyðu-
blað Bobs lá enn á skrifborði hans. Hann
brann af löngun til þess að fara, en óttaðist
það. Hann vissi, að ef hann færi, myndi
hann ekki geta stillt sig um að hitta Natalie,
og það gæti orðið henni þungbært. En að
lokum tóku tilfinningarnar yfirráðin og hann
fyllti út umsóknareyðublaðið. Hönd hans
skalf, er hann lagð'i pennann frá sér, en í blá
augu hans var kominn nýr bjarmi. Allar
lireyfingar lians urðu ákveðnari og stæltari.
Það var vor, er Bob kom til Montreal. Hlýtt
og bjart vor, sem hoðaði íiiikið hitasumar.
Er Bob leit vfir dagskrána, sá hann, að
einn daginn áttu gestir þingsins að heim-
sækja ýmsa spítala. Hver læknir átti að skrifa
nafn sitt undir þann spítala, sem hann liafði
hug á að heimsækja. Bob ritaði nafn sitt skýr-
um prentstöfum undir þann spítala, þar sem
liann vissi, að Natalie starfaði.
Honum kom ekki dúr á auga nóttina áður.
Hann gat ekki hrakið þá hugsun frá sér, að
daginn eftir fengi hann að líkindum að liitta
Natalie. Ef til vill fengi hann að líta í stór,
brún augu hennar aftur, og heyra hana segja
mjúkri, titrandi röddu: — Bob.
En það gat líka eins vel gerzt, að hann
fengi ekki tækifæri til að sjá liana. Hún gæti
verið á næturvakt og sofið fvrri part dagsins,
eða þá verið í fríi. Honum varð kalt um
hjartað við þá tilhugsun og leið illa.
Hann borðaði ekki morgunverð þennan
morgun. Hann var kominn á hinn fyrirhug-
aða mótstað klukkustundu á undan hinum.
Bara að þeir tækju nú ekki eftir því, hve óró-
legur liann var. Þegar þeir komu loks og
ræddu við liann, gerði hann sitt bezta til að
vera eðlilegur og kurteis, en í níu af liverjum
tíu tilfellum, fann hann, að hann vissi vart
hvað þeir voru að tala um.
Hann hafði hugleitt, að ef til vill myndi
liann hitta liana á einhverri deildinni, og
hann hafði búið sig undir það sem vissu. All-
an tímann, meðan liann gekk um með hinuni
gestunum, var liann spenntur til liins ýtrasta.
Hann nam staðar eins og hinir til að lesa
skýrslur og rabba við sjúklinga, en var þó si-
fellt að liorfa eftir því, livort hann kæmi ekki
auga á Natalie .Hann tók viðbragð, er hann sa
hvítum hjúkrunarkvennabúning bregða fyrir
á ganginum. Það gat verið hún, hver sem var
þessara livítklæddu systra gat verið hún.
Þegar lieimsókninni var lokið, hafði liann
enn ekki séð hana. Ætti liann að fara með
hinum? Þeir voru þegar á leið niður stigann.
Bob gekk aftastur ,og þá snerist hann allt i
einu á hæli og gekk rakleiðis yfir forsalinn
til yfirhjúkrunarkonunnar.
— Afsakið systir, en það starfar víst ekki
hjá yður lijúkrunarkona að nafni Natalie
Norris. Ég þekkti, — þekkti hana heima i
Englandi.
— Jú, vissulega. Ungfrú Norris starfar
hér. Hún var einmitt að fara af vakt. Viljið
þér tala við liana?
Bob varð órólegur. Hann fann, að hann
roðnaði. — Ég, ég veit ekki. Eg vil ógjarna
trufla hana.
— Vitleysa, sagði yfirhjúkrunarkonan
uppörvandi og elskulega. — Hún gleðst áreið-
anlega yfir því að hitta einhvern frá Eng-
landi. Og að svo mæltu flýtti liún sér burt
til að láta Natalie vita.
Hann stóð niðri í forsalnum og beið, eirð-
arlaus og æstur, stífur af eftirvæntingu °r
með undarlega suðandi tilfinningu í höfðinu.
Hann gekk í gegnum árlangt kvalræði og
þjáningar, fögnuð, efa og eftirvæntingu. Hann
vonaði, að hún kæmi ein. Hann var þurr •
hálsinum og beit sig í neðri vörina lil nð
halda stillingunni.
Og að lokum kom hún á móti honum niður
langan gangimi, og það skrjáfaði lítið eitt •
stífuðum einkennisbúningnum. Hún var su
sama og áður, en þó ekki sii sama. Hún var
enn fegurri og bjartari, en miklu alvarlegri
en áður.
Hún gekk liægt í áttina til hans og stóð
grafkvrr andspænis honum. Þá leit hún upp
til lians og brosti.
— Halló, Bob.
Hann kom ekki upp nokkru orði. Hun
virkaði svo undarlega örugg. Hann reyndi að
finna einhver orð, og tókst það að lokum- "
66
HE.IMILISBLAÐlP