Í uppnámi - 25.04.1902, Qupperneq 21
11
þekkja leikaröð þessa, sein komið getur fyrir í kongsbragði: 1. e2—e4,
e7—e5; 2. f2—f4, e5xf4; 3. Rgl—f3, g7—g5; 4. Bfl—c4, Bf8-g7;
5. d2—d4, d7—d6; 6. h2—li4, h7—h<i; 7. Rbl—c3, c7—c6; 8. h4
Xg5, h6xg5; 9. Hhlxh8, Bg7xh8; 10. Rf3—e5, d6xe5; 11. Ddl
—h5, Dd8—f6; 12. d4xe5, Df6—g7; 13. e5—e6, Rg8—f6; 14. e6xf7f.
Ef 8vart nú leikur rétt, sem sé Ke8—e7, mun það hafa bezt upp úr
þessu, en ef það leikur Ke8—f8, þá er sigurinn auðunninn fyrir hvítt
með leiknum 16. Bclxf4!.
Eg skal nú að lokum tilfæra hér tafl eitt, er John Watkinson
vann og sýnir ljóslega, hve óheppilegt það er leika kongshrókspeðinu
fram á röngum tíma; það er þannig: 1. e2—e4, e7—e5; 2. Rgl—f3,
Rb8—c6; 3. Bfl—c4, Rg8—f6; 4. c2—c3, h7—h6?; 5. d2—d4, e5x
d4; 6. e4—e.5, Rf6—h7; 7. 0—0, d4xc3?; 8. Rbl x c3, Bf8—e7;
9. Ddl—d3, 0—0; 10. Dd3—g6, d7—d5; 11. Rc3xd5, f7xg6 og
livítt mátar í 2. leik.
Forgjafir tíðkast ekki eins mikið nú eins og áður og margur
ungur taflmaður hyggur það fyrir neðan sig að taka við slíku. Það
er samt ekki rétt; takið forgjöf þegar liún býðst, því að þá leggur
mótteflandinn sig meira í líma og þér munuð geta lært meira af taflinu,
ef þér standið honum jafnara að vígi. Bezta æfing í skák er að fara
á eptir yfir töfl, sem þér hafið tapað, og sjá hvar þér hafið gjört slæma
leika eða hvað hafi orðið yður að falli. Ef þér venjið yður á þetta,
verður líka mjög auðvelt fyrir yður að muna töfl og taflstöður utan
að; reyndar er misjafnt live mönnum tekst það. Þegar tafli yðar er
komið svo, að engin von er um að vinna, þá skuluð þér gefast upp,
lieldur en að vera að berjast fram í rauðan dauðann og þreyta og ergja
mótleikandann með því. Það er líka nokkuð þreytandi, þegar tafl-
maður er allt of lengi að hugsa sig um leika, og á liinn bóginn hafa
menn lítið gaman af að tefla við menn, sem eru fljótfærir og hugsunar-
lausir. Eigi heldur skuluð þér gjöra neitt það, er trufli mótstöðumann
yðar eða ergi hann að raunalausu, og bezt er að venja sig á að
fylgja stranglega skákreglunum, ekki að taka upp gjörða leika og fleira
þess konar. Eitt hið ófyrirgefanlegasta í skákfélögum er það, þegar
áhorfendurnir blanda sér í taflið og lofa eða lasta gjörðir teflendanna.
Eitt heilræði að lokum: Látið ekki skáktaflið fá svo mikið vald yfir
yður, að þér vanrækið annað, sem meira er um vert og yður ber að gjöra.
Thomas Aveky frá Birmingham, vitur maður og góður taflmaður, hefur
sagt þessi orð: “Skák er kennari æskulýðsins, huggun hins miðalðra
og unun ellinnar. En látið hana ekki ná ofmiklum tökum, því eg þekki
þess dæmi, að við það hafa eignir tapazt. Skáktaflið veitir skemmtun,
unun, huggun og fræðslu en það er ekkert lífsstarf,”