Í uppnámi - 25.04.1902, Síða 50
40
yulli og silf’ri; ú skákborði þessu mátti og teila “kurírskák” og tylgdu
menn, er tefia átti hana með. I’essir menjagripir eru nú haf'ðir til sýnis
við hátíðleg tækifæri í saluum i “Gastliaus zum Schaclispiel” þar sem
þorpsbúar koma saman til tafls; á sunnudögum kvað mega sjá þar inni
fjörugt skáklíf og opt kvúðu 200 töfl vera þú notuð. Vér getum þvi miður
ekki gefið neitt yfirlit yfir tölu teflenda í Ströbeck, en miklar sögur ganga
um þorpið og íbúa þess. Vér höfum séð þess nýlega getið í þýzku blaði,
að iðkun skáktaflsins sé í engri framför í þorpinu á allrasíðustu árum,
kannske megi heldur segja, að hið gagnstæða eigi sér stað; það mun þó
eigi svo að skilja, að íbúaruir séu til muna farnir að slá slöku við það.
—De nordiska Schackkongresserna í Stockholm 1897, Köpenhann 1899
og Göteborg 1901. Utgifna af H. Krause, A. C. Rosendal och P. Englund.
Stholm. 1902. 8°, 4 + 88 + 80 + 104 bls.; með 3 myndaspjöldum. — í
þessari bók eru prentuð öll töfl, sem tefld hafa verið hinum norrænu skák-
þingum, með skýringum og athugasemdum eptir beztu skákfræðinga beggja
landanna. Bókin er eiguleg og sérlega vönduð að frágangi.
— Seven Hundred Chess Problems selected from the compositions
of Mrs. W. J. Baird. London (Henry Sotheran & Co.) 1902. Stór 8°,
c. 460 bls. — Þess hefur úður verið getið hér í tímaritinu, að Mrs. Baihh
væri að búa safn af skákdæmum sínum til prentunar; það er þessi bók,
er að ofan er nefnd og komin er út núna fyrir nokkrum dögum. Að því
er allan frágang snertir er hún einhver hin prýðilegasta skákbók, er vér
liöfuin séð. Öll dæmin i safninu hafa verið birt áður i ýmsum blöðum og
tímaritum og munu þvi mörgum kunn, en einmitt af því að þau voru
þannig á við og dreif, var mikil þörf á að safna þeini saman á einn stað,
eins og nú hefur verið gjört; þess er getið við hvert dæmi, hvar það
var birt fyrst. Bók þessi er mikið gleðiefni fyrir þá, sem unna skákdæmum
þessarar gáfuðu og fjölhæfu konu.
— Engin þjóð á eins ötula forvígismenn skáktaflsins meðal kvennþjóðarinnar
eins og Englendingar; lesendur vorir munu kannast við Mrs. Baird og
Mrs. Rowland, en auk þeirra mætti nefna Mrs. Riioda A. Bowles, er
liefur ritstjóm á skákdálknum i blaðinu “Womanhood”, og margar fleiri.
Hin siðastnefnda stóð af kvenna hálfu fyrir kapptöflum milli 10 enskra
kvenna og 10 manna úr “Cambridge University Chess Club”, er haldin
voru i Lundúnum 26. marz. Konur biðu að visu ósigur, þar sem þær
hlutu 2 Y2 stig (3 jafntefli og 1 unnið tafl) gegn 7Ya stigi, en þess er þó
jafnframt getið, að þær hafi barizt vel og drengilega.