Heimir - 01.09.1908, Page 10
58
HEIMIR
ur og mjög fáa presta, sem er borgaö fyrir starfa sinn og gera
ekki annað. Og þeir sem fá borgun, fá aöeins nógu mikiö til
aö geta lifað samkvæmt hinum fornu trúarbragöahugmyndum
vorum og fyrirmælum. Vér vinnum allir. Og samt, í landi
sem hefir 300,000,000 íbúa, sem eru undir hinni tvöföldu bölv-
un fátæktar og vanþekkingar, sem eru undir útlendri stjórn, er
undirokar landið bæöi stjórnmálalega og fjármunalega, þegar
landiö er f niöurlægingar ástandi, þegar ný lög eru stööugt sam-
in til aö eyðileggja innlendan iðnað, í landi, þar sem hið opin-
bera kostar engu til almennrar uppfræöslu og þar sem mentun
er svo dýr aö hinir fátækari geta alls ekki orðið hennar aðnjót-
andi, í landi, sem hefir mörg ólík tungumál og ólíka lifnaöar-
háttu, í landi þar sem' slæmt heilbrigðiseftirlit og fátækt orsaka
árlega drepsóttir, er á sumum árum verða svo miljcnum skiftir
aö dauðameini,— í landi sein hefir jafnmörg stjórnmálaleg,
félagsleg, mentaleg og trúarbragðaleg var:dk\ aði við að berjast,
furðar yður þó að þeir, sem aðhvllast hugsjónir þær er Brahmo-
Somaj aðhyllist, hafi nóg verk fyrir höndum alla daga ársins?
Já, og þeir gera það með glöðu geöi, og hið bezta er, að þeir
gera það ekki einir. Vér stærum oss ekki af því að standa ein-
ir á orustuvellinum. Vér höfum stórar hugsjónir til að vinna
fyrir, en þessar hugsjónir eru líka eign annara, og margir af
þeim tilheyra ekki félagi voru, en vinria samt að því sarna. í
morgun hitti eg tvo rnenn af mínu þjóðerni, sem höfðu alist upp
með kristnum mönnum. Eg er heiðingi, en í samtali mínu við
þá fann eg, að þegar alt kom til alls var enginn rnunur á okkur;
mínar hugsjónir og vonir voru þeirra hugsjónir og vonir, og við
gætum unnið saman, hlið við hliö, mannfélaginu til blessunar.
Annar þeirra eða máske báðir munu tala til yðar. Annar mað-
ur sem er fylgjandi spámannsins15 mun einnig tala til yðar, og
jafnvel orð hans verða ef til vill ekki ólík mínum.
Þannig, vinir mínir, störfum vér og vonum, og í heimi, sem
stjórnast af guðs vilja megum vér búast viö að vel fari meðan
vér störfum með göfugar og varanlegar hugsjónir fyrir augum
1) Múhameds.