Heimir - 01.09.1908, Side 11
H E I M I R
59
vorum. Eg hefi veriö langoröur, en leyfiö mér að segja yður
aö eg er bjartsýnismaður. Þrátt fyrir alla erviðleika og vand-
ræöi, sem framundan eru, er eg altaf hughraustur. Þaö getur
vel veriö aö þaö sé heimskulegt bjartsýni, en það er bjartsýni,
sem eg held dauðahaldi í. Og mér þykir gaman aö dreyma;
og einn af draumum mínum, er að land feöra minna. Indland,
megi áður en langt um líöur eignast viröulegt sæti á meðal
þjóða heimsins, og aö landsmenn mínir, lausirvið ranglæti kúg-
unarinnar og fyrirlitning hins hrokafulla manns, geti lifaö sam-
an í friöi og bróðerni, aö hjá þeim veröi ljósiö, sem er lögmál
kærleikans, bjartara og bjartara, og sýni betur og betur með
degi hverjum ímynd guös á ásjónum þeirra.
þýtt af G. A.
s
Undanfarandi ræöa, senr er eftir eir.n af leiötogum Brahmo-
Somaj á Indlandi, er þýdd í þeim tilgangi að gefa lesendum
„Heimis" hugmynd um þessa ágætu hreyfingu, sem nú um
mörg ár hefir staöið í mjög vingjarnlegu sambandi við Unítara
hreyfinguna hér í Améríku. Þrátt fyrir alla fjarlægöina, og
þrátt fyrir ólíka hætti og ólíka sögu hafa þessar tvær hreyfingar
stefnt í svo líka átt aö báöar viöurkenna skyldleikann og eru
nú aö leitast viö að kynnast hver annari sem bezt aö auöið er.
þýÖ.