Heimir - 01.09.1908, Page 14

Heimir - 01.09.1908, Page 14
62 HEIMIR Hún útskýrði það fyrir prestinum að þetta væri maðurinn sem hún ætlaði sér að giftast. Presturinn og kona hans héldu strangar ræður yhr henni fyrir ósæmilega hegðan. Lispeth hlustaði rólega á, en sat fast við sinn keip. Það þarf mikið af kristindómi til að útrýma ósiðlegum austurlanda eðlishvötum,— eins og að verða ástfanginn við fyrstu sjónhending. Lispeth, sem hafði fundið mann þann sem hún tilbað, gat ekki séð hvers vegna hún ætti að þegja yfir vali sínu. Hún haíði heldur ekki í hyggju að verða send í burtu. Hún ætlaði sér að hjúkra Englendingnum, þangað til honum væri batnað, og svo ætlaði hún sér að giftast honum,— það var hennar stefna. Eftir hálfsmánaðar væga hitasótt fór Englendingurinn að ná sér aftur, og hann þakkaði prestinum og konu hans og Lis- peth,- sérstaklega Lispeth -fyrir góðsemi þeirra. Hann var ferðamaður á Indlandi, að hann sagði. — Það var aldrei talað um heims ferðalanga á þeim dögum, meðan póstskipaferðir voru fáar og í bernsku.— Hann hafði komið frá Dehra Dem, til að leita að jurtum og fiðrildum í Simla-hæð- unum. Enginn í Simla þekkti neitt til hans. Hann hélt að hann hefði dottið fram af kletti, þegar hann var að teygja sig eftir burkna, á fúnum trjábol, og að fylgdarmennirnir hefðu stolið farangrinum og hlaupið á burtu. Hann ráðgerði að fara aftur til Simla, þegar hann væri orðinn dálítið hressari, -— hann kærði sig ekkert um meiri fjallagöngur. Hann flýtti sér ekkert að komast í burtu og var seinn að ná sér aftur. Lispeth vildi hvorki þýðast ráðleggingar prestsins né konu hans, og þessvegna talaði prestskonan við Englendinginn, og sagði honum hvað Lispeth bjó í brjósti. Hann hlóg og sagði að það væri fallegt og rómantískt, en þar eð hann væri trúloí- aður stúlku heima, þá myndi ekkert slíkt koma til mála. Auð- vitað myndi hann fara gætilega,— og hann gjörði það. Samt sem áður þótti honum gaman að tala við Lispeth, að ganga með henni og segja henni ýmislegt fallegt og kalla hana gælunöfnum, á meðan hann var að hressast til að komast í burtu. Það hafði alls enga þýðingu fyrir hann, en það var henni meira en allir hlutir í heiminum. Hún var mjög ham-

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.