Heimir - 01.09.1908, Page 19

Heimir - 01.09.1908, Page 19
HEIMIR 67 Settust þau fyrst að nálægt Pembina í N. Dak. og eftir tæp 2 ár færSu þau sig til íslenzku byggðarinnar suðaustur af Hallson. Árið 1896 fluttist Guttormur aftur með fólk sitt austur til Minnesota ríkis, til hinnar svonefndu Roseau nýlendu, en er íslendingar tóku sig þaðan upp 1903, fór hann vestur til Sask- atchewan til hinnar þá nýmynduðu Foam Lake byggðar, og and- aðist þar eins og áður er sagt, úr brjóstveiki er hann hafði þjáðst af í mörg ár. Jarðarför hans fór fram þann 'yj3. Júní, að viðstöddum fjölda manns og töluðu yflr líkinu frændi hans, síra EinarVigfús- son frá Desjamýri og Dr. Sig. Júl. Jóhannesson. Guttormur var jarðsettur á heimajörð sinni og hvíldu þar fyrir tveir ætt- ingjar hans. Fyrst eftir að Guttormur kom til Dakota byggðarinnar tók hann þátt í Lútherskum kyrkjumálum,en hvarf brátt þar frá er frjálslyndar trúarhreyf- ingar byrjuðu þar í byggð með Menningarfélagsmönnum og trúboði Björns heitins Péturs- sonar, frænda hans. Enda átti Guttormur aldrei heima í orþodoxum félagsskap. Ríkt í huga hans bjó sjálfstæðis þráin, er illa unir öllum höftum og fyrirskriftum. Meðan honum entist aldurinn til, eftir það, var hann einbeittur og áhugaríkur stuðningsmaður frjálslyndra trú- mála. Þann tíma sem hann bjó í Roseau í Minn., stóð hann í Unitariskum söfnuði hjá Síra Magnúsi J. Skaptasyni, og eftir að vestur kom, til hinnar nýju byggðar við Foam Lake, sýndi hann hinn sama áhuga og velvilja fyrir þeim málum, með því aö vilja styrkja þau fyrirtæki er miðuðu í þá átt.

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.