Heimir - 01.09.1909, Page 13
H E I M I R
9
vegna þess, aö þangaö, en ekki lengra geti þeir komist. Öm-
nrleg er skoöun þessi, vegna þess, aö sé hún látin gilda alstaöar
þá er ekki hægt aö hugsa sér braut þá, sem mannsandinn hefir
gengiö frá byrjun ööruvísi en villubraut, og allt þaö sem
fundist heíir á þeirri leiö, og sern mennirnir hafa nefnt sannleik
og reitt sig á veröur aö blekkingu.
Þaö þarf ekki aö því aö spyrja frá hverju sjónarmiöinu
fiestir líta á sannleikann. Þeim fer, sem betur fer, fækkandi,
sem einblína svo aftur í tíinann aö þeir ekki sjá'i breytinguna og
framföiina, sem æ og æfinlega á sér staö; stundum hraöfara og
stundum hægfara. Flestir trúa aö þaö sé nauðsynlegra starf aö
leita nýs sannleika en aö varöveita þaö sem einhvern tíma var
nefndur sannleikur án nokkrar verulegrar íhugunar hvort þaö
getur enn boriö þaö nafn. þaö liggur í meðvitund allra heilbrigt
liugsandi manna, aö þessi sannleiksvaröveizla sé aö miklu leiti
eyðsla á kröftum, vegna þess, aö þaö sem sé í raun og veru
sannleikur veröi ávalt bezt geymt meö því aö láta það hverfa
inní og sameinast nýjum sannleik. Flestir hafa mist alla trú á
fortakslausar heimildir einhverstaöar aftan af öldum og.þaö jafn-
vel í þeim efnum, sem vísindaleg rannsókn getur ekki æíinlega
naö út yfir. Þeir treysta þeim, sem nú lifa betur til aö ákveöa
hvaö fyrir þá sjálfa skuli vera sannleikur heldur .en þeim, er
fyrir löngu síöan voru uppi.
En þaö sem skortir er viljinn til aö framfylgja þeirri eöli-
legu stefnu, er í þessari afstööu felst. Menn eru hræddir og
hikandi aö fylgja þeim, er vilja halda áfram í sannleiksleitinni,
þeim finst þaö vera aö slíta of mörg bönd er tengi þá við þetta,
sem þeir þó í hjarta sínu ekki viðurkenna aö vera hiö bezta.
Hugsa þeir hinir sömu um þaö, aö meö slíkum hálfieik eru þeir
aö skifta sjálfum sér á milli tveggja stefna, sem í raun og veru
eru hver annari andstæöar ? Hugsa þeir um þaö, aö hin bezta
afstaöa, sem nokkur maöur getur haft gagnvart nokkru málefni
er aö vera einlægur og ákveöinn ineö því, sem maöur sér aö er
sannast og réttast ? ,