Heimir - 01.04.1910, Side 7
HEIMIR
175
frægur fyrir kyrkjusögu sína. Aþanasíusar flokkurinn vann
sigur á þinginu og trúarjátning, sem þeir héldu fram var sam-
þykt af öllum nema Aríusi og tveimur öörum biskupum, sem
voru umsvifalaust reknir nr kyrkjunni. Deilunni var samt ekki
lokiö, því margir af þeim, er höföu samþykt trúarjátninguna,
snérust aftur til skoðana Aríusar. Hann var kallaður til baka
eftir nokkurn tíma úr útlegð sinni og Aþanasíus rekinn í burt
í hans staö. En þá andaðist hann snögglega og komst þá
Aþanasíusar flokk'urinn aftur til valda.
Það'sem á rnilli bar í deilu þessari var hvort Kristur væri
guð eða ekki. Aþanasíus og hans fylgjendur héldu fast frarn að
Kristur væri guð og að hann hefði ekki verið getinn, heldur
hefði altaf veriö til. Hann vildi fá þá skoðun viðtekna að guö
sjálfur hefði kornið í heiminn. Aríus aftur á móti vildi vernda
eingyðistrúna. Þess vegna hélt hann fram, að Kristur væri
annars eðlis en guð. Hann var getinn, var ekki skapaðar al-
góður, heldur varö þaö af frjálsum vilja, Þess vegna hafði guð
haflð hann upp og gert hann hluttakandi í stjórn heimsins.
Aríus neitaði ekki guðdómi Krists, en hann lnigsaði sér liann
sem mannlega tilveru, er með fullkomnun sinni heföi orðið
guðdómleg.
Eftirmenn Konstantínusar keisara voru ýmist fylgjendur Aþ-
anasíusar eða Aríusar og veitt flokkunum ýmist betur eða ver eftir
það. Skoðánir Aríusar náöu mikilli útbreiðslu á meðal þjóðanna,
sem voru aö snúast til kristinnar trúar á Ealkanskaganum og þar
sem nú er Þýzkaland og Frakkland. En þegar Þeódósíus mikli
komst til valda 383 var fylgjendum Aríusar með lögum bannað
að halda kyrkjueignum og á margan annan hátt voru þeir of-
sóttir, og varð það til þess að þeir siná hurfu úr sögunni í
austurhluta ríkisins.
Um það leyti sem þessi deila var í rénun byrjuöu aðrar um
það hvort Kristur heföi bæði haft marmlegt eðli og guðlégt eöli
eða aðeins eitt. I Alexandríu skólanum var því haldiö fram, að
hið guðlega og inannlega eðli Krists hefðu blandast svo sanran
aö úr þeim varð aðeins eitt. I Antíokkíu var annar skóli, sem
var undir áhrifum Páls frá Samosata, sem áður er getiö. Þessi