Heimir - 01.04.1910, Qupperneq 10
i78
HEIMIR
Færeyingar eru af hreinu og ómenguðu kyni. Hvert mannsbarn
meö hreint og ómengaö blóö í æöum hefir tilfinningu og samúö
meö þeim. Þeir eru aö fólksfjölda til álíka og íbúar Aöalgötu
og Borgargötu til samans. Beriö nú saman þessar tvær fólks-
tegundir !
Lítiö á ves.alings Danmörku á heimsuppdrættinum ! Maöur
kemur nauinlega auga á liana. Altaf hefir hún veriö aö tapa.
Loksins er hún oröin svo vön viö aö tapa, aö hún er nú sjálf
farin aö reyna aö selja þaö sem enginn veröur til aö taka frá
henni. Stórveldin köllutn vér ránfugla. Bara vér heföum
meira af ránfuglseðlinu í oss! Veldi þaö sem aldrei stækkar er
mjög svo hætt viö aö fari minkandi, unz þaö hverfur úr sögunni
meö öllu. Danska ljóniö er næstum því dýrasafnsljón. Þaö
hafa heldur aldrei veriö önnur Ijón í Danmörku. I íslenzka
fálkanum er blóöiö viltara. Og nú sem stendur þurfum vér á
ólmleikanum aö halda, þaö er aö segja, áræöi og atorkusemi.
Vér þörfnumst þessmeira en hinnar svonefndu blessunarríku upp-
fræöslu.
Einnig á Islandi láta margir oft hugfallast. Sumir af
Islands beztu mönnum, svo sem landsins ágætasta skáld, Matt-
hías Jochumsson, þýöari Shakespears, hefir í bréfi til mín sagt:
“Hvað stoðar þetta alt sarnan ! Vér erum of smáir og fáir!”
Einnig á hinu andlega starfsviöi veröur maöur var viö þennan
hugrekkisskort. Nokkrir hinna fremstu manna þjóöarinnar,
svo sem Hannes Hafsteinn, leggjast alt of snemma til væröar
vegna uppörfunarskorts.
Þaö sem því miöur stendur íslendingum mest fyrir þrifum,
er þaö, aö tilheyra svo litlu og framkvæmdasmáu ríki. En ef
aö þér nú viljiö gera Danmörku vinveitta íslandi, þá skulum vér
taka þaö aö oss, að gera Island vinveitt Danmörku. Og þá
fáiö þér símrita samband viö Evrópu ogDanmörku, sem þér svo
mjög þarfnist. Smábæir yöar liggja þá ekki lengur inniluktir í
myrkri allan hinn langa vetrartíma. Vér munum umbreyta
hinum voldugu fossum yöar í rafmagnsljós og hreyfiafl, Þar að
auki er Island ekki nægilega kannaö ennþá. Ef aö eyjan heföi
veriö ensk hjálenda, hver veit þá hve margar aröberandi námur