Heimir - 01.04.1910, Page 18

Heimir - 01.04.1910, Page 18
H E I M I R 186 meginöfl og frurnefni. Efnafræöinni hefir tekist aö finna, aö milli 70 og 80 frumefni mynda þaö sem ennþá er þekt af hinum efnislega heimi. Þaö viröist ekki ómögulegt, og er ætlun sumra efnafræöinga, aö takast muni, aö fækka frumefnunum, meö því aö sanna, aö sum af þeim, sem nú eru þekt, sé sam- setningar. Þaö er jafnvel ekki óhugsandi aö einlivern tíma sannist aö alt efni sé aðeins eitt frumefni í mismunandi mynd- um. Vér sjáum óteljandi krafta í náttúrinni, en vísindin kenna, aö margt af þeim kröftum, sem virðast algerlega ólíkir eru í raun og veru náskildir og orsaka hver annan. Alt iíf á jöröinni á sólarljósinu tilveru sína aö þakka, og þaö berst frá sólunni tii jaröarinnar meö Ijósvakasveifium. Ljósvakasveiflur- nar og titringur ódeilanna, sem enginn getur séö, eru nauösyn- leg skilyröi fyrir öllum náttúruöflum. Er ekki hugsanlegt aö einhvern tíma í framtíöinni sannist, aö öll hreyfing í heiminum stafi af einni og sömu orsök. ? Þetta tvent, hreyfing og efni, getur ekki verið til hvert án annars. Efni, sem engin hreyfing væri í, væri alt annað en efni er, eins og vér þekkjum það. Og hreyfingin gæti ekki veriö til án efnis, vegna þess aö hún þarf eitthvað til að berast eftir. Tómt rúm er þessvegna hvergi til. Efni og kraftur eru alstaðar til í heiminum ; þaö er áreiðanlegt, aö þar sem stööug gagnverkun efnis og kraftar væri ekki fyrir hendi, þar gæti engin lífræn náttúra veriö til. Hin almenna skynsemi gerir sér grein fyrir heiminum sem afleiöingu orsakar, er sé honum fráskilin. Náttúrulögmálið viröist benda á tilgang, og þaö sannar tilveru skynsemi og máttar utan viö heiminn sem stjórnar þessu náttúrulögmáli. Þessi útskýring er í raun og veru ekkert nema samlíking. Mannleg starfsemi er gerð aö mælikvarða, sem alheimurinn er mældur á. Alheimurinn getur veriö bæði orsök og afieiðing í einu. Að segja að hann hljóti að hafa orsök er engin útskýr- ing. Það má þá gera ráö fyrir, að sú orsök hafi orsök og svo áfram ad infinitum. I stað þess halda mónistarnir fram, aö

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.