Kirkjuritið - 01.07.1940, Síða 3

Kirkjuritið - 01.07.1940, Síða 3
Kirkjuri'tið. Vígsla Háskólakapellunnar. Eins og kunnugt er, var iiiö nýja stórhýsi Háskóla ís- lands vígt og aflient (il notkunar 17. júní með mikilli við- liöfn. Hófst sú athöfn með guðsþjónustu í háskólakapell- unni, þar sem forseti guðfræðideildar, dr. Magnús Jónsson, prófessor, messaði. En næsta dag á undan, eða sunnudag- inn 16. júní, 4. sd. eftir trinitatis, var kapellan vígð. Til vígslunnar var hoðið prestsvígðum mönnum í Reykja- vík og næsta nágrenni, guðfræðikandidötum og stúdent- um guðfræðideildar, kirkjuráði, formanni sóknarnefndar, kenslumálaráðherra, fastakennurum Háskólans, liúsa- meistara og nokkurum þeim mönnum, er sérstaklega höfðu unnið að smíði og skrevting kapelhmnar eða senl henni gjafir, ásamt konum þeirra. Athöfnin hófst kl. 2 e. h. með því, að þegar aðrir gestir voru komnir til sæta sinna gengu í skrúðgöngu inn í kap- elluna: Kenslumálaráðherra Hermann Jónasson og rektor Háskólans dr. Alexander Jóhannesson, þá dr. Jón Helga- son biskup og allir þcir prcstar og fyrv. prestar, er mættir voru hempuklæddir. Þegar þeir voru komnir til sæta sinna, gengu þeir, er vígsluna önnuðust, í skrúðgöngu til kapell- unnar. Gengu fremst tveir famuli, séra Garðar Svavarsson og séra Halldór Kolheins, þá biskup landsins, herra Sigur- geir Sigurðsson i biskupsskrúða og forseti guðfræðideildar, dr. Magnús Jónsson, prófessor, í fullum prestsskrúða, en þeir framkvæmdu vígsluathöfnina, þá prófessor Ásmund- ur Guðmundsson, er ])rédikaði, og loks séra Bjarni Jóns- son, vígslubiskup, séra Friðrik Hallgrímsson, prófastur, séra Árni Sigurðsson, fríkirkjuprestur og séra Sigurður Einarsson, docent, en þeir lásu ritningarkafla þá, •sem vigslunni tilheyra. Voru þeir allir skrýddir rykkilínum. L

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.