Kirkjuritið - 01.07.1940, Side 7
Kirkjuritið.
VígsluræSa.
247
ellunni 400.00 kr. og hefir fyrir þær verið keyptur skrúði,
svo og patína i sama stil og kaleikurinn og bækur lianda
kapellunni. Þá eru henni og farin að herast áheit.
Er alt þetta vottur þeirrar hlýju, sem nú strevmir til há-
skólakapellunnar. Er vonandi, að vinir hennar iilúi að henni
með fégjöfum svo vel, að þar verði hægl að halda uppi
guðsþjónustum fyrir Háskólann og aðra. Háskólakapellan
á áreiðanlega verkefni að vinna fvrir Guðs ríki meðal vor.
Vígsluræða Sigurgeirs biskups Sigurðssonár
Eilífi, ástríki faðir!
Helga þú þennan stað með nálægð þinni. Lál þinn anda
ávalt dvelja hér i þessum nýja hústað, er þér liefir verið
gjörður.
Kenn oss að tiibiðja þig i anda og sannleika.
Amen.
„Borg, sem stendur uppi á fjalli, fær
ekki dulist. Ekki kveikja menn heldur
Ijós og setja það undir mæliker, heldur á
ljósastikuna og þá lýsir það öllum, sem
eru í húsinu“ (Matt. 5, 14.—15.).
Háskóli Islands á svo stórt og mikilvægt verkefni að
vinna með þjóð vorri, að hann fær ekki dulist. Og nú hafa
honum verið reist svo veg'Ieg heimkynni, að þau fá heldur
ekki dulist. tslenzka þjóðin á hér nú hið glæsilegasta
musteri menta og menningar. Hingað berast vonir hinna
vitrustu og beztu manna þjóðarinnar.
,,Borc/, sem stendur uppi á fjalli, fær ekki dulist“.
Þessi dagur er mikill merkisdagur i sögu íslenzkrar
kristni og kirkju, er vígð er kapella í hinni fyrstu há-
skólabyggingu landsins. Fvrir mínum sjónum er hún tákn
nýrrar dagsbrúnar — nýrrar dagrenningar í þjóðlífi voru.
Var ekki likast því sem ljós væri kveikt i þessu landi,