Kirkjuritið - 01.07.1940, Qupperneq 23

Kirkjuritið - 01.07.1940, Qupperneq 23
KirkjuritiS. Leiðin lil fullkomnunar. 263 svo að Háskólanum auðnist að verða J)að, er þjóðin þarfn- ast og ætlast til og umfram alt það, er Guð vill. Hér skal heðið um vöxt og gróandi starfa Iians í þágu þess, sem nytsamt er og g'ott. Hér skal liorft til Guðs með bæn um hjálp lians og kraft lil meiri og meiri þroska og fullkomn- unar. Biðjum um þetta saman, hiðjið um það öll, sem orð mín heyrið. Það sé bænarefni vort nú í dag og á ókomnum árum. Og dýrð Guðs og máttur mun vaka yfir þessum stað. Hver maður, hver stofnun, hver þjóð og liver kynslóð veraldar hlýtur fyr eða síðar að velja um vegina tvo, sem Kristur hendir á í guðspjallinu í dag, og marka svo örlög sín. Guð gefi það, að vér megum velja rétt — leiðina lil fullkomnunar. Lífið liggur við. En hresti oss kjark og þrótt og villumst vér frá henni, eða liggi oss við að örvænta um hag mannkynsins og sjáum ekkert framundan fyrir sorg og tárum, jiá hiðjum fyrir sjálfum oss og því öllu með bæninni, sem vér lærðum í bernsku: Snú þú mér, svo að ég snúi mér, því þú, Drottinn, ert minn Guð. Vígslu kapellunnar og Háskólans minst. Við liámessu í Dómkirkjunni 16. júní mintist séra Bjarni Jóns- son vigslu Kapellunnar. Bar haim fram þá ósk, að frá þeim stað mætti blessun fagnaðarerindisins berast lil háskólaborgaranna og þjóðarinnar í heihl. Bað hann þess, að Jiar mætti á heilagri vigslustund og framvegis búa sú gleði, sem felst í þessari játn- ingu: „Sannarlega er drottinn hér á þessum stað.“ Þvi næst mintist séra Bjarni vígslu Háskóla íslands með þeim ummælum, að kveðja bærist frá kirkjunni á þessum timamót- um, kveðja til Háskólans frá Dómkirkjunni, Jiví að starf beggja liefði á undanförnum árum verið unnið í nábýli og góðu sam- komulagi. Talaði séra Bjarni um þá heill, sem þvi fylgdi, er æskan væri heilagt vor þjóðarinnar. Bað hann þess, að svo mætti verða.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.