Kirkjuritið - 01.07.1940, Blaðsíða 34
274
Prestastefnan.
Júlí.
Kirkjuráðs-
fundir.
2. Ennfremur skipaði hann sálmabókarnefndina þremur
mönnum, biskupi, séra Hermanni Hjartarsyni og séra Jakobi
Jónssyni með þeim tilmælum, að prestastefnan kysi tvo menn
í viðbót. Hún fói kirkjuráði afgreiðslu málsins, en það af-
greiddi málið með eftirfarandi tillögu, sem samþykt var með
þremur atkvæðum gegn einu (biskups). Einn kirkjuráðsmanna,
Ólafur Björnsson, sat hjá við atkvæðagreiðsluna:
„Kirkjuráðið sér ekki ástæðu til þess að tilnefna 2 menn í
hina stjórnskipuðu sálmabókarnefnd, enda mun biskupinn, sam-
kvæmt gildandi reglum, bera undir kirkjuróð tillögur sínar til
breytinga á sálmabókinni.
Eftir að kirkjuráð hafði á þennan hátt, sem ég hefi lýst, al'-
greitt málið, lýsti ég yfir því, að ég mundi taka lil starfa í
nefndinni. Höfum við séra Hermann Hjartarson starfað hvor í
sínu lagi að endurskoðuninni síðan og sameiginlega hér í
Reykjavík um skeið, síðastliðinn vetur. Einnig hefir séra Jakob
Jónsson unnið vestra og sent okkur allítarlegar tillögur sínar.
Gerum við ráð fyrir að geta unnið sameiginlega að endurskoðun
sálmabókarinnar i nokkura mánuði á komandi vetri.
Kirkjuráðið hefir haldið samtals G l'undi á
sýnódusárinu og rætt auk sálmabókarmálsins,
sem tók allmikinn tíma, ýms mól, er kirkjuna
varða, svo sem um Strandarkirkjumál, sóknarskifting i Reykja-
vík, borgaraleg hjónabönd, utankirkjumenn, prestsseturshús, eft-
irlaun presta, prestsstarf guðfræðinema að sumarlagi, styrk til
organista, kenslubækur í kristnum fræðum, guðsþjónustur til
minningar um útgáfu Nýja-Testamentisþýðingar Odds Gottskálks-
sonar, styrk til safnaðarblaða o. fl.
Minningarguðs- TvegSJíl kunnra þjóna kirkjunnar látinna var
þjónustur o fl ‘ninst á árinu á 100 óra afmæli jæirra: Séra Páls
Sigurðssonar í Gaulverjabæ og séra Þorvaldar
Bjarnasonar ó Melstað. Prédikaði ég við minningarguðsþjónustu
í Gaulverjabæ og ritaði um séra Pál minningargrein, en dr.
Iheol. Jón Helgason biskup flutti útvarpsræðu um séra Þorvald,
og ])essa daga mun birtast grein um hann eftir ungan mann hér
i bæ, sem ber nafn séra Þorvaldar, hins snjalla gáfumanns með
viðkvænta barnshjartað. — Nokkurum sinnum kom ég í prédik-
unar- eða ræðustól frarn fyrir kirkjunnar hönd, svo sem við
guðsþjónustur í Dómkirkjunni fyrir hjúkrunarkonur frá Norð-
urlöndum, er hér voru um 600 í heimsókn siðastl. sumar, Norð-
urlandaguðsþjónustu á Finnlandsdegi 10. des. 1939, Sjómanna-
degi og vegna vetrarhjálpar í Reykjavik og Hafnarfirði, og nokk-
urum öðrum. Var flestum þessum athöfnum útvarpað.