Kirkjuritið - 01.07.1940, Blaðsíða 35

Kirkjuritið - 01.07.1940, Blaðsíða 35
Kirkjuritið. Prestastefnan. 275 Fríkirkjan Reykjavík 40 ára. A árinu mintist Fríkirkjan í Reykjavik 40 ára starfs sins hér í bænum. Hefir hún, sem kunn- ugt er, unnið inikið starf að öllu leyti liliðstætt starfi þjóðkirkjunnar. Telur söfnuðurinn nú um 8500 meðlimi. Er mér ljúft að votta presti safnaðarins, séra Árna Sigurðssyni starfsbróður vorum, sem í meðvitund okkar er jafnt þjóðkirkju- sem frikirkjuprestur, svo og söfnuðinum í heild — einlægan bróðurhug okkar og færa þeim árnaðaróskir. Fundarhöld Prestafélag íslands liélt aðalfund sinn að af- og mót lokinni prestastefnunni síðastl. ár og sömuleiðis félagsdeildir þess, út um landið. Átti ég jiess kost að sitja l'und þriggja deildanna, Preslafélagsdeildar Suður- lands, Hallgrimsdeildar og Prestafélags Vestfjarða, og sann- færðist enn betur um mikilvægi starfs deildanna. Voru fundirnir allir hinir ánægjulegustu. Ýms mikilvæg málefni voru þar til meðferðar og guðsþjónustur fluttar í sambandi við fundina og sumstaðar t. d. í Vestur-Skaftafellsprófastsdæmi með afbrigðum vel sóttar. Vil ég eindregið hvetja til ]iess, að guðsþjónusturnar, þar sem tveir prestar fara á hverja kirkju prófastsdæmis jiess, er fundirnir eru haldnir i — verði í framtíð látnir fram fara, eins og tíðkast hefir í Prestafélagsdeild Suðurlands og i Hallgrims- deild. Hraungerðismútið, er haldið var, sem kunnugt er, 15.—17. ]). m. , var fjölsótt. Mun þangað hafa komið um 300 manns. Hafa þeir, sem ég átti tal við og þar voru staddir, látið hið bezta af samverustundunum þar og talið mótið sólskinsblett í hinu ytra dimmviðri yfirstandandi tima. Hinn 12. apríl s.l. og næstu sunnudaga þar á eftir voru víðs- vegar í kirkjum landsins fluttar minningarguðsþjónustur vegna 100 ára minningar um útgáfu Nýja-Testamentisþýðingar Odds Gottskálkssonar. Hér í Reykjavík voru fluttar útvarpsguðsþjón- ustur, og prédikaði séra Friðrik prófastur Hallgrímsson. Sama kvöldið flutti dr. theol. Jón Helgason hiskup virðulegt erindi um Nýja-Testamentisþýðingu Odds Gottskálkssonar. Kirkjulegar 1 ársb>'rÍun sendi ég út Hirðisbréf mitt til bækur og blöð. Prófasta og t)resta' Þrátt fyrir vaxandi erfiðleika a hokautgafu hefir allmikið verið gefið út af kirkjulegum ritum á árinu. Kirkjuritið hefir komið út, sem áður. Hálogaland Berggravs bisk- ups, i þýðingu prófessoranna Ásmundar Guðmundssonar og Magnúsar Jónssonar. — Jón Halldórsson, prófastur í Hítardal. eftir dr. theol. Jón Helgason biskup. Kenslubók í kristnum fræð- um eftir séra Þorstein Kristjánsson, Lindin, ársrit Prestafélags

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.