Kirkjuritið - 01.07.1940, Síða 38

Kirkjuritið - 01.07.1940, Síða 38
278 Prestastefnan. Júlí. Fjörsöfnun til Hallgrímskirkju. skyldu á sínum tíma lagðar fram bæði fyrir kirkjuráð og presta- stefnu. Voru dagskrártillögurnar á þessa leið: „I því trausti, að nefnd sú, sem nú vinnur að endurskoðun sálmabókarinnar, birti, að starfi sínu loknu, tillögur sínar um breytingar á sálmabókinni, svo að bæði kirkjuráð, prestastefna og safnaðarfólk í landinu geti kynst þeim og tekið afstöðu tii þeirra, tekur prestastefnan fyrir næsta mál á dagskrá'". Þessi tillaga var feld með 20 atkvæðum gegn 10. Aftur á móti var samþykt með 22 atkvæðum gegn (i svohljóðandi tillaga: „Prestastefnan lýsir trausti sínu á sálmabókarnefndinni og felur henni að starfa áfram og leggja tillögur sínar fyrir kirkju ráð og prestastefnu, og tekur fyrir næsta mál á dagskrá." Ennfremur var samjjykt viðaukatillaga um l>að, að nefndin mætti taka tvo menn til viðbótar. Séra Einar Thorlacius prófastur skýrði nokkuð frá fjársöfnun 'til Hallgrímskirkju í Saurbæ, fyrst meðan liann annaðist söfnunina og svo eftir ]jað, er landsneínd Hallgrímskirkju tók við söfnunarstarfinu. Hann bar fram svolátandi tillögu: „Synodus telur eðlilegast, að fé það, er Hallgrímskirkja í Saur- bæ á í vörzlum landsnefndar Hallgrímskirkju, sé þegar lagt í Hinn almenna kirkjusjóð, og felur biskupi að bera málið fram við landsnefnd Hallgrímskirkju". Tillagan var samþykt með samhljóða atkv. gegn einu. Skýrsla barna Hitari l)arnaheimilisnefndar þjóðkirkjunnar, heimilisnefndar Ásmundur Guðmundsson prófessor, lagði fram reikning barnaheimilissjóðsins fyrir árin 1938 og 1939 og skýrði frá störfum nefndarinnar. Sjóðurinn var í árs- lok 1939 kr. 2351.87. Heimilin, sem sjóðurinn hefir styrkt þessi ár, eru Sólheimar og sumarheimili barna á Siglufirði og að Lundi i Öxarfirði. Fóru ritarinn og formaður nefndarinnar, séra Guð- mundur Einarsson, nokkurum orðum um Sólheimahælið sérstak- lega, fjárhag þess og rekstur. Nefndin var öll endurkosin í einu hljóði. Hana skipa: Séra Guðmundur Einarsson, próf. Ásmundur Guðmundsson, séra Bjarni Jónsson, séra Hólfdán Helgason og séra Þorsteinn Briem. Söngmál Biskup hóf framsögu um söngmál kirkjunnar kirkjunnar og sýndi fram ó, til hve mikillar eflingar góðu-' kirkjusöngur gæti orðið kristninni í landinu. Kvað hann nauðsyn að hefjast lianda í þessum efnum og taldi kirkjusókn mundi mjög aukast, ef vel tækist. í lok máls síns bar hann fram þessa tillögu: „Prestastefnan felur biskupi að vinna að því, að stofnað verði

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.