Kirkjuritið - 01.07.1940, Side 40
Júlí.
Aðalfundur Prestafélags íslands.
'J'ilhögun
Aðalfundur Prestafélags Islands var að þessu
sinni haldinn í 1. kenslustofu hins nýja H<á-
skólahúss, miðvikudaginn 20. júní. Mun það vera fyrsti fundur,
sem haldinn er í húsi þessu. Hann liófst með guðsþjónustu í Há-
skólakapellunni kl. 9,30, og stýrði séra Ólafur Magnússon, prœp.
hon. þeirri athöfn.
Þar sem fundurinn var haldinn í sambandi við prestastefnuna
og aðalfund Suðurlandsdeildar Prestafélagsins, og ennfremur átti
að halda í framhaldi af þvi hinn almenna kirkjufund, þótti ekki
rétt að hafa hann nema einn dag. Formaður, próf. Ásmundur Guð-
mundsson, setti fundinn og stjórnaði honum, en séra Árni Sigurðs-
son gegndi ritarastörfum ásamt ritara félagsins, próf. Magnúsi
Jónssyni.
í fundarlok var gengið til Háskólakapellunnar og flutti formað-
ur þar bæn, en sálmar voru sungnir á undan og eftir.
Fundinn sóttu: Biskupinn, kennarar guðfræði-
deildar allir þrír, 28 prestar og prófastar, 7
2 kandídatar og 1 guðfræðistúdent, eða alls 42
Fundarsókn.
pastores emeriti,
menn.
Skýrsla stjórnar.
Reikningurinn.
Formaður gaf yfirlitsskýrslu um það, sem gerst
hafði á félagsárinu, breytingar á stjórn, ýmis
fjármál, athafnir stjórnar o. s. frv. Meðal annars hefir nú fengist
hækkuð sú fjárupphæð, sem prestakallasjóður fær og kirkjuráð
ráðstafar, og var það m. a. með það fyrir augum, að Kirkjuritið
fengi aukinn styrk, af þessari 2000 króna hækkun.
Féhirðir, séra P. Helgi Hjálmarsson, las reikn-
ing félagsins og skýrði hann. Fer hagur félags-
ins batnandi, sérstaklega vegna betri skila félagsmanna. Er áríð-
andi, að svo haldi áfram að vera, því að þá er hag félagsins
borgið. En félagið hefir komið svo mörgu til leiðar til ’hagsbóta
þessari stétt, að hún ætti að efla hag þess sem allra bezt.
Útgáfumál ^ síðasta hausti kom út bókin Hálogaland eftir
E. Berggrav biskup, þýdd af þeim prófessorun-
um Ásm. G. og M. .1. Sala henliar varð ekki eins góð og vænst
var, sérstaklega vegna þess, hve geysimikið kom út af bókum