Kirkjuritið - 01.07.1940, Qupperneq 42
282
Aðalfundur Prestafélags íslands.
Júli.
Skipun
prestakalla.
Séra Gísli Skúlason prófastur bar fram tillögu
um, að köllunarréttur safnaða til presta væri
trygður með lögum o. fl. En af ])ví að þá var
komið að fundarlokum, treystu menn sér ekki til að afgreiða svo
margþætt og vandasamt mál undirbúningslaust, og var því málið
afgreitt með svofeldri samþykt: „Fundurinn felur stjórn Presta-
félagsins að undirbúa breytingar á prestskosningarlögunum og
leggja þær fyrir næsta aðalfund
Hætt var um það, hvar halda skykli næsta aðal-
fund Prestafélagsins. Komu fram raddir um að
æskilegt væri, að hann yrði haldinn á Akureyri
sambandi við vígslu hinnar nýju kirkju þar.
Loks var stjórn Prestafélagsins endurkosin, svo
og endurskoðendur. Stjórnina skipa því: Próf.
séra Ásmundur Guðmundsson, próf. séra Magnús
Jónsson, prófastur séra Friðrik Hallgrímsson,
séra Árni Sigurðsson og séra Guðmundur Einarsson. Endurskoð-
endur eru prófastur séra Þorsteinn Briem og præp. hon. séra
Kristinn Daníelsson.
M. J.
Næsti
aðalfundur.
Kosning stjórn-
ar og endur-
skoðenda.
Sumardvöl Reykjavíkurbarna í sveitum.
Biskup landsins og formaður Prestafélagsins fóru þcss á leit
við presta, að þeir leituðust við að útvega börnum úr Reykjavik
dvalarstaði í sveit í sumar. Tóku prestar vel þessari málaleitun
og komu allmörgum börnum fyrir. Á 4. þúsund Reykjavíkurbarna
dvelur nú í sveit.
Kirkjuvígslur.
Biskup landsins vígir að forfallalausu þrjár kirkjur í þessum
mánuði: Tjarnárkirkju á Vatnsnesi 7. júli, Óspakseyrarkirkju 14.
júlí, Haukadalskirkju 21. júli.