Kirkjuritið - 01.01.1941, Blaðsíða 8

Kirkjuritið - 01.01.1941, Blaðsíða 8
2 Magnús Jónsson: Janúar. og höpp hinum þræði. Fátt reynir meira á þrelc og menn- ingu. Þau átök verða mörgum ofurefli. Fyrir þjóð vora, eins og aðrar þjóðir, sem slíkt steðj- ar að, er ekki til nema einn máttur, sem verndað getur, og sá máttur er kristindómurinn. Hann er öruggur og alveg óskeilcull kraftur gegn öllum þessum hamförum. En eigum við hann í svo ríkum mæli, að hann megi duga okkur? Eða höfum við vanrækt að hervæðast eins og svo margar aðrar þjóðir? Um það er hvorki mitt né nolckurs manns að dæma. Reynslan mun sýna það. En því miður sýnast ýmis tákn tímanna henda í allt annað en bjarta átt. Fyrst er að kunna að líta á hamfarirnar í réttu Ijósi. Kvæði Matthíasar um Dettifoss lýsir þessu vet. Hann stendur í fyrstu höggdofa frammi fyrir þessum ógur- legu hamförum. Honum finst, sem horfi hann þar á „almættisins teikn“. En það er ekki nema um stund. Brátt sér hann alt annað bak við og yfir þessum ógn- um. Hamfarirnar eru ekki styrkur heldur vanmáttur: Hert þig, heljarbleikur, hræða skalt ei mig. Guðdómsgeislinn leikur gegn um sjálfan þig. Er það ekki svona með hamfarir mannanna, þar sem þeir æða hver gegn öðrum, fótumtroða boð Guðs, smána kærleilcslögmál Krists og blása ógnum gegn öllu, sem byggt hefir verið upp? Það sýnist ægilegt í styrkleik sínum. En séð með trúarsjón skáldsins er það hjóm, vanmáttug uppreisn vesælla og villuráfandi jarðarbarn- anna gegn hinni himnesku hátign. Guðdómsgeislinn leik- ur yfir því og gegnum það. Við þurfum ekki að efa, hvort sigrar að lokum. Heljar- bleikur ófriðarins á ekki að hræða nokkurn kristinn mann. En hversu lengi standa ógnirnar? Þegar við lítum á öll sárin, sem höggvin eru, alt, sem bæta þarf, alt, sem græða þarf, alt, sem byggja þarf,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.