Kirkjuritið - 01.01.1941, Side 9

Kirkjuritið - 01.01.1941, Side 9
Kirkjuritið. Nýár 1940. 3 verður okkur þá ekki að segja eins og sama góða skáld- ið segir í hinni dásamlegu nýárskveðju 1878: Heilaga Ijós, sem heyr æ stríð við heljarveturinn ár og síð. Mikið þú átt i vændum verk að vinna úr dauðanum lífsins serk. En það verður. Því að guðdómsgeislinn, sem skín gegnum „heljarbleik“ er fyrst af öllu kærleiksgeisli, verm- andi cg græðandi, án allrar verðskuldunar. Kom því, ó, skínandi tjósanna Ijós og leys vora köldu þjóðlífs rós! skrifaðu’ á heiminn lög og láð: „Lífið er sigur og guðleg náð." Stórþjóðir heimsins berjast fyrir sigri — og bíða allar ósigur á sál og líkama. „Og eg sá, og sjá: Bleikur hestur; og sá er á honum sat, hann hét Dauði, og Helja var í för með honum“, segir í Opinberunarbókinni. En við getum líka barist á þessu komandi ári, barist til sannarlegis sigurs. Því að „alt sem af Guði er fætt sigrar heiminn, og trú vor, hún er siguraflið, sem hefir sigrað heiminn“. Það er sá sigur, sem oft kemur mönn- unum fyrir sem ósigur, það er Golgatasigur, en það er sá eini sigur, sem unt er að vinna. Það er sigurinn yfir hinu illa, hinu lága, yfir syndinni og bölinu, kærleilmns sig>ur yfir hatrinu, Ijóssins sigur yfir myrkrinu, lífsins sigur yfir dauðanum. Iíom þú, ó, skínandi Ijósanna Ijós! Kom þú, drottinn Jesú! Kom í hjörtu mannanna. Styttu þjáningar þeirra, þjáningar haturs og eymdar, og vinn lífsins serk úr dauðans dróma! Ef hinn harði skóli þessa árs, sem nú fer í liönd, getur fært mannkynið og okkur sjálf nær því marki, þá ér hægt að lirópa út í sjálf ófriðármyrkrin: Gleðilegt ár! Magnús Jónsson.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.