Kirkjuritið - 01.01.1941, Qupperneq 28
22
Jón M. Guðjónsson:
Janúar.
En til livers kemur þú, barnið mitt, hingað fyrst og fremst?
Þú kemur til að hitta jafnaldra þinn eða jafnöldru, til að
tala við þau og til að gleðjast með þeim, og það er gott.
En þú kemur til meira. Þú kemur til að tala við Guð og
frelsarann í barnslegri hæn þinni. í þeirri bæn þakkar
þú honum fyrir svo margt. Guði og frelsaranum er svo
margt að þakka. Þú þakkar honum fyrir árin, sem hann
hefir lofað þér að lifa, fyrir allar gleðistundirnar, fyrir
góðu og hlýju sólskinsstundirnar, fyrir litlu blómin, sem
breiða út marglitu, fallegu kollana sína í sumarhlíðunni
til þess að gleðja þig, fyrir kvakið í blessuðum fuglun-
um, fyrir tryggar og góðar skepnurnar, sem eru altaf að
hjálpa okkur með kröftum sínum og gæðum. Alt eru þetta
gjafir til okkar mannanna frá góðum Guði. En sérstak-
lega þakkið þið Guði fyrir hann pabba og hana mömmu
og aðra vini, sem eru altaf að hjálpa okkur og vilja öllu
fórna ykkar vegna. Já, það er svo mart að þakka. En í
hæninni ykkar hiðjið þið Guð líka um það, að þið megið
sjálf þroskast að vizku, vexti og náð hjá Guði og mönn-
um, eins og sagt er að Jesús hafi gert. Þið biðjið Guð að
gefa ykkur það, að hjá ykkur, í hjarta ykkar, megi liið
góða frækornið, sem þar hefir verið sáð, vaxa æ meir og
meir, svo að öll störfin ykkar, já, meira að segja hvert ein-
asta orð, sem þið talið, heri því vitni, að Guð sé með ykkur,
kærleiki hans. Kærleiki Guðs er stærri en alt annað, og
meira virði okkur mannanna hörnum en alt annað. IJugs-
ið ykkur: Hann gefur okkur það að hera hlýjan hug lil
allra, þykja vænt um alla. Hann gefur okkur það að
hjálpa þeim, sem erfitt eiga og bágt, og hugga þá, sexn
gráta.
Hvað ættum við að biðja um, sem okkur væri betra
að eiga exx þetta? Það er ekkert betra en kærleikurinn.
Og að biðja Guð um lxann, ásamt því að þakka honum
fyrir gjafirnar góðu, á að vera — og er — aðaleiándi okk-
ar í livert sinn liér á þennan stað, í Guðs lms. Við erum
öll óstyrk hörn, líka við, sem stærri erum, og við erum